Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) fer fram í skákhöll TR Faxafeni 12, dagana 31. maí – 7. júní. 

Staður

Skákhöll TR, Faxafen 12, Reykjavík.

Dagsetningar

  • Mótið fer fram 31. maí – 7. júní 2026 (9 umferðir).
  • Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 30. maí kl. 16:00

Umferðartafla (2026)

Umferð Dagur Tími
1 Sunnudagur 31. maí 10:00
2 Sunnudagur 31. maí 16:00
3 Mánudagur 1. júní 18:30
4 Þriðjudagur 2. júní 18:30
5 Miðvikudagur 3. júní 18:30
6 Fimmtudagur 4. júní 18:30
7 Föstudagur 5. júní 18:30
8 Laugardagur 6. júní 13:00
9 Sunnudagur 7. júní 13:00


Athugið: Fyrsta og önnur umferð fara báðar fram á sunnudeginum 31. maí kl. 10:00 og 16:00. Að öðru leyti er tímasetningin sambærileg við fyrri ár (virkir dagar kl. 18:30 og helgar kl. 13:00).

Tímamörk

90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki, auk 30 sekúnda viðbótartíma eftir hvern leik (90+15/40 + 30″).

Verðlaun

  • 1. sæti: 100.000 kr.
  • 2. sæti:   60.000 kr.
  • 3. sæti:   40.000 kr.

Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi ef jafnt er í efstu sætunum. Aldrei fleiri en þrír geta fengið peningaverðlaun. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í næsta landsliðsflokki Skákþings Íslands.

Oddastig

  1. Flestar tefldar skákir
  2. Buchholz -1
  3. Buchholz
  4. Sonneborn-Berger
  5. Innbyrðis úrslit
  6. Hlutkesti

Þátttökugjöld

  • Venjulegt gjald: 10.000 kr.
  • Unglingar (16 ára og yngri, f. 2010 og síðar): 50% afsláttur (5.000 kr.)
  • Titilhafar (aðrir en CM/WCM): Frí þátttaka

Skráning

  • Skráning eingöngu í gula kassanum á Skák.is.
  • Skráningafrestur er til 16:00, laugardaginn, 30. maí.
  • Ekki hægt að skrá sig á staðnum.
  • Skráning telst ekki gild fyrr en þátttökugjald er greitt inn á reikning: 101-26-12763, kt. 580269-5409.

Yfirsetur (byes)

Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1–7. Fyrir yfirsetu fær keppandi hálfan vinning. Biðja þarf um yfirsetu á sannarlegan hátt áður en síðastu skák umferðarinnar á undan lýkur.

  • Skráningarform
  • Þegar skráðir keppendur
  • Chess-Results