Björgvin Jónsson (SR), Halldór Grétar Einarsson (B&B) og Siguringi Sigurjónsson (SR) handsala sameininguna.

Skákdeild Breiðabliks&Bolungarvíkur og Skákfélag Reykjanesbæjar hafa ákveðið að sameinast undir nafninu „Skáksamband Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness“.

Skákfélag Reykjanesbæjar vann aðra deild s.l. vetur og er einnig með sveit í 4.deild. Skákdeild Breiðabliks&Bolungarvíkur er með sveitir í 2. , 3. og 4.deild.

Eftir sameininguna er hið nýja félag með sveitir í öllum deildum.

Skákfélag Keflavíkur var stofnað 5.janúar árið 1932. Félagið breytti um nafn árið 1997 og heitir í dag Skákfélag Reykjanesbæjar.

Taflfélag Bolungarvíkur á sér langa sögu og er m.a. fjórfaldur Íslandsmeistari skákfélaga (2009-2012).

Skákdeild Breiðabliks er fjögurra ára og rekur öflugt barna og unglingastarf í Stúkunni við Kópavogsvöll. Skákdeildin stendur fyrir ýmsum mótum t.d. Skákhátíð MótX í samvinnu við Taflfélagið Huginn og skólamót Kópavogs í samvinnu við skákkennara í Kópavogi.

Tilgangur sameiningarinnar er að auka breidd, styrk, nýliðun og fjölbreytileika beggja aðila í nýju og spennandi samstarfi.

Sérkenni hvers aðila mun haldast og það góða starf sem hver um sig stendur fyrir.

Nýtt félag mun senda sameiginlegt lið í Íslandsmót skákfélaga og stefnt er að því að fjölga sveitum þess smám saman á næstu árum.

Það er sýn allra aðila að hið nýja félag verði spennandi vettvangur fyrir gróskumikið starf þar sem reynsla og æska koma saman.

- Auglýsing -