Hannes Hlífar að tafli á Íslandsmótinu 2018. Mynd: GB

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2541) situr þessa dagana að tafli á alþjóðlegu móti í Ceske Budejovice í Tékklandi.  Tíu skákmenn taka þátt og tefla allir við alla. Hannes hóf mótið með tapi gegn aserska stórmeistaranum Azer Mirzoev (2506) og með jafntefli við tékkneska alþjóðlega meistarann Lukas Cernousek (2462).

Meðalstigin eru 2463 og er Hannes næststigahæstur kepepnda. Mótinu er framhaldið með þriðju umferð í dag.

- Auglýsing -