
Íslenska liðið á opnum flokki á Ólympíuskákmótinu í Batumi í Georgíu er eingöngu skipað stórmeisturum og mun það vera í fyrsta síðan árið 1996 sem slíkt gerist. Liðið er afar reynslumikið en engin þó reynslumeiri en Hannes Hlífar Stefánsson sem teflir á sínu fjórtánda Ólympíuskákmóti í röð.
Íslandsmeistarinn, Helgi Áss Grétarsson, teflir á sínu fyrsta Ólympíuskákmóti í 16 ár og Norðurlandameistarinn Jóhann Hjartarson teflir rétt eins og hann gerði í Bakú 2016. Auk þeirra eru í liðinu Héðinn Steingrímsson og Hjörvar Steinn Grétarsson sem skipa tvö efstu sæti íslenska skákstigalistans.
Liðsstjóri og landsliðsþjálfari er Helgi Ólafsson, sem reyndar er reynslumestur allra á ólympíuskákmótun en hann hefur hefur teflt á 16 ólympíuskákmótum og er nú í liðstjórahlutverkinu í þriðja skipti. Hans nítjánda ólympíuskákmót sem keppandi eða liðsstjóri!
Helgi segir svo í bréfi til stjórnar SÍ og landsliðsnefndar:
Vil byrja á því að þakka stjórn SÍ þann heiður að velja mig sem liðsstjóra og þjálfara íslenska ólympíuliðsins sem tekur þátt í opna flokki Ólympíumótsins í Batumi í Georgíu í september nk. Mér er jafnframt falið að velja þá einstaklinga sem tefla í liðinu. Þeir eru:
- GM Héðinn Steingrímsson (2583) – hefur teflt á þremur ólympíumótum
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2557) – hefur teflt á fjórum ólympíumótum
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2541) – hefur teflt á þrettán ólympíumótum
- GM Jóhann Hjartarson (2523) – hefur teflt á ellefu ólympíumótum
- GM Helgi Áss Grétarsson (2460) – hefur teflt á fjórum ólympíumótum
Borðaröð verður tilkynnt síðar.
Fyrir tveimur dögum síðan var kennalandsliliðið kynnt til sögunnar.















