Nansý Davíðsdóttir og Hou Yifan tefla báðar á Ólympíuskákmótinu í Batumi. Myndin var tekin á Reykjavíkurskákmótinu 2012. Mynd: Hrafn Jökulsson.

Ísland sendir bæði lið í opinn flokk og í kvennaflokk á Ólympíuskákmótið í Batumi í Georgíu sem fram fer 24. september – 5. október.

Íslenska liðið í opnum flokki verður kynnt til leiks 21. júní nk. Kvennaliðið er hins vegar kynnt til leiks í dag á sjálfan kvennadaginn.

Björn Ívar Karlsson, landsliðþjálfari, er liðsstjóri og valdi liðið. Íslenska liðið í kvennaflokki á Ólympíuskákmótinu 2018 er svo skipað:

  1. WGM Lenka Ptácníková (2230) – hefur teflt á tólf ólympíuskákmótum
  2. WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir (1983) – hefur teflt á sjö ólympíuskákmótum
  3. Nansý Davíðsdóttir (1945) – hefur aldrei teflt á ólympíuskákmóti
  4. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1900) – hefur teflt á þremur ólympíuskákmótum
  5. Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1721)´- hefur teflt á sex ólympíuskákmótum

Nansý er að tefla á sínu fyrsta Ólympíuskákmótin en allir hinar fjórar eru þrautreyndar landsliðskonur. Lenka er að tefla á sínu þrettánda Ólympíuskákmóti í röð. Guðlaug tefldi fyrst á Ólympíuskákmóti fyrir 40 árum síðan!

- Auglýsing -