Guðni Stefán, Guðmundur Kjartansson og Róbert Lagerman. Mynd af heimasíðu Vinaskákfélagsins

Annað minningarskákmót Vinaskákfélagsins af þremur var teflt í dag, 25. júní 2018, í Vin. Skákmótið var haldið til minningar um Jorge Fonseca. Vel var mætt eða alls 19 keppendur. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá alþjóðlega meistarann Guðmund Kjartansson mæta. Eins og áður voru 6 umferðir með 7 mínútum á klukkunni.

Glæsileg verðlaun verða, en fyrir utan venjulega verðlaunapeninga, þá ætlar Air Iceland Connect og Hrókurinn að verðlauna þann sem verður með bestan árangur úr öllum þremur minningarskákmótunum með miða til Grænlands að verðmæti 100.000 kr.
Ennfremur ætlar Vinaskákfélagið og Hrókurinn að bjóða 20.000 kr. verðlaun fyrir 2. sætið og 10.000 kr. fyrir 3. sætið.

Starfsmaður Vinjar, Sabrína lék fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman. Eins og alltaf áður stóð Ingi Hans og bakaði gæða vöflur, sem skákmenn gæddu sér á.

Sigurvegari varð alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson með fullu húsi en hann allar sex skákirnar. Í öðru sæti varð Guðni Pétursson með 4½ vinning og þriðji varð Róbert Lagerman með 4 vinninga.

Sérstök stigakeppni verður milli manna og verður sá efstur sem fær flest stigin á öllum mótunum.

Staðan er birt á heimasíðu Vinaskákfélagsins eftir hvert mót, en hún gengur út á að 1. sætið á hverju móti fær 10 stig, 2. sætið 9 stig o.s.frv. til 10. sæti sem gefur 1 stig. Þeir sem verða jafnir að stigum fá samt jafn mörg stig. Eftir annað minningarmótið er Guðni Pétursson efstur með 19 stig.

Sjá úrslit á chess-results

Nánar á heimasíðu Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -