Nepo tekur við verðlaununum. Arkadij Dvorkovich, er lengst til hægri. Mynd: Georgios Souleidis

Einu stórmóti lauk í gær en annað hófst. Rússinn Ian Nepomniachchi (2757) sigraði á Dortmund-mótinu en hann yfirspilaði Georg Meier (2658) í lokaumferðinni.

Nepo fékk vinningi meira en Vladislav Kovalev (2655), Jan-Krysztof Duda (2737) og Anish Giri (2782) sem urðu í 2.-4. sæti. Hr. Dortmund, Vladimir Kramnik (2792), varð aðeins í 6.-7. sæti.

Lokastaðan:

Nepo var valinn í ólympíulið Rússa, sem tilkynnt var um helgina, ásamt Kramnik, Karjakin, Jakovenko og Vitiugov. Athygli vekur fjarvera Grischuk og Svidler.

Rússneski forsetaframbjóðandinn, Arkadij Dvorkovich, lét sig ekki vanta við verðlaunaafhendinguna.

Sjá nánar á Chess.com.

Frá fyrstu umferðinni í Biel: Mynd: Lennart Ootes.

Biel-skákmótið hófst svo í gær. Þar tefla sex skákmenn tvöfölda umferð. Þar hófu tveir stighæstu keppendur mótsins það  með sigri þar sem hann fórnaði drottningunni. Heimsmeistarinn, Magnus Carlsen (2842), vann David Navara (2741) í ótrúlegri skák og Shakriyar Mamedyarov (2801) yfirspilaði heimamanninn Nico Georgiadis (2526).

Heimsmeistarinn og frambjóðandainn. Mynd: Twitter síða Dvorkevich.

Áðurnefndur Arkadij Dvorkovich lét ekki heldur ekki vanta í Biel en þar var viðstaddur setningu mótsins í fyrrdag.

Sjá nánar á Chess.com.

- Auglýsing -