
Áskell Örn Kárason varð í 1.-4. sæti á á Evrópumóti öldunga sem lauk í kvöld í Drammen í Noregi. Áskell varð býsna nærri gullinu en aðeins munaði hálfu stigi að hann hreppti þa en hlaut þess í stað silfrið sem er frábær árangur.
Það að Áskell varð í skiptu efsta sæti þýðir það að hann verður sjálfkrafa alþjóðlegur meistari. Áskell hafði enga hugmynd um það. Var býsna kómískt að sjá undrunarsvipinn á Áskeli þegar honum var tilkynnt það!

Nánari frétt um mótið síðar.
- Auglýsing -















