Stórmeistararnir Þröstur Þórhallsson og Helgi Ólafsson urðu jafnir og efstir á hinu árlega Baccalá Bar sem haldið er á Hauganesi. Tefld var hraðskák með 7 mínútna umhugsunartíma, alls 11 umferðir. 34 keppendur mættu til leiks og skemmtu sér hið besta. Keppendur komu víða að á mótið, meðal annars frá Reykjavík, Vestfjörðum, Skagafirði og Eyjafirði. Hinn síungi Dr. Ingimar Jónsson er aðal hvatamaður mótsins en það er fyrir rausnarskap Elvars Reykjalín Jóhannessonar, sem mótið er jafn veglegt, glæsilegt og skemmtilegt og raun ber vitni.

Elvar rekur Baccalá Bar og er eigandi Ektafisks á Hauganesi. Þessi fyrirtæki standa að mótinu og veita vegleg verðlaun. Að auki voru nú, sem oft áður, veitt vegleg aukaverðlaun sem dregin voru út í mótslok. Heppnir þátttakendur fengu gjafabréf í hvalaskoðun eða bjórkippu með sér heim. Eftir 6 umferðir af 11 var tekið hlé og gátu þá keppendur gætt sér á gómsætri fiskisúpu og nýbökuðu brauði, allt í boði hússins.
Snemma varð ljóst að aðalbaráttan stóð á milli stórmeistaranna tveggja sem tóku þátt í mótinu. Lögðu þeir báðir hvern andstæðinginn á fætur öðrum og þar kom að þeir mættust. Er óhætt að segja að þar hafi Helgi staðið til vinnings um tíma en í hraðskák getur allt gerst. Svo fór að lokum að Þröstur lagði Helga og var þá einn efstur. Skömmu síðar mætti hann stigahæsta ungmenni landsins, Jóni Kristni Þórhallssyni. Sá ungi gerði sér lítið fyrir og lagði stórmeistarann. Þá voru Helgi og Þröstur aftur orðnir jafnir en hinn ungi Jón fylgdi þeim fast á eftir. Slitu þeir sig nokkuð frá öðrum keppendum sem reittu vinninga hver af öðrum.

Að loknum 11 umferðum voru þeir félagar, Helgi og Þröstur enn efstir með 10 vinninga og Jón Kristinn þriðji með hálfum vinningi minna. Næstir í röðinni voru þeir náfrændur Rúnar Sigurpálsson og hinn ungi Gauti Páll Jónsson. Hlutu þeir báðir sjö og hálfan vinning. Í innbyrðis skák þeirra frænda sigraði reynslan unglinginn. Rúnar heldur því montréttinum í næstu sex fermingarveislum.

Í næstu sætum á eftir þéttist pakkinn töluvert og fór svo að Elvar Reykjalín bætti við verðlaunafé svo að þeir sem voru í sætum 6 til 14 hlutu allir verðlaun. Sannaði hann þar enn og aftur rausnarskap sinn, en verðlaunum hafði verið heitið fyrir 12 efstu sætin.
Þröstur og Helgi skiptu á milli sín fyrstu og öðrum verðlaunum og hlaut hvor um sig 40.000 krónur en þar sem Þröstur hafði sigur í viðureign þeirra reiknast hann sigurvegari í mótinu. Flutti Helgi stutta tölu er hann tók við verðlaununum og þakkaði þeim félögum, Elvari og Ingimar, fyrir vel heppnað og skemmtilegt mót. Tóku allir viðstaddir undir þær þakkir með veglegu lófaklappi.

Seinna um kvöldið fór fram boðsmót Ektafisks með veglegum verðlaunum á sama stað. Mótið hófst eftir að barnum hafði verið lokað og stóð fram yfir miðnætti. Tefldu þar 17 keppendur einar sjö umferðir. Mótinu stýrði hinn ungi Símon Þórhallsson með stakri prýði. Ekki nóg með það, heldur hafði hann þar sigur og hlaut 6,5 vinninga. Eins og í fyrra mótinu varð Jón Kristinn Þorgeirsson hálfum vinningi á eftir sigurvegaranum. Þess má geta að þeir félagar voru bekkjarbræður í grunnskóla.
Lokastöðu boðsmótsins má sjá hér http://chess-results.com/tnr371141.aspx?lan=1&art=4
Allir keppendur fóru glaðir heim og er tilhlökkun fyrir næsta móti, sem haldið verður að ári.

Sigurður Arnarson














