Hikaru Nakamura sigraði á at- og hraðskákmótinu sem fram fór í St. Louis dagana 11.-15. ágúst sl. eftir harða baráttu við Vachier-Lagrave og Mamedyarov. Mótið var hluti af Grand Chess Tour.

Nakamura er efstur í heildarkeppninni, þegar aðeins eitt mót er eftir, og er nánast öruggur um að vera á topp 4 en fjórir efstu keppendurnir tefla til úrslita í London í desember.

Lokamótið í Grand Chess Tour verður Sinquefield Cup sem hefst á laugardaginn í St. Louis. Þar verður Magnus Carlsen meðal þátttakenda sem boðsgestur.
Nánar á Chess.com.
- Auglýsing -
















