Málþing um málefni skákhreyfingarinnar verður haldið laugardaginn 1. september nk. Málþingið verður haldið í Rimaskóla og hefst kl. 10.

Undirbúningshópur, skipaður af forsvarsmönnum margra stærri taflfélag landsins völdu fjögur umræðuefni fyrir málþingið. Þau eru:

  • Landsliðs- og afreksmál
  • Kvennaskák
  • Barna- og unglingastarfsemi – (hvernig á að forðast brotfall).
  • Landsbyggðin og skák í skólum – útbreiðslustarf

Dagskráin er sem hér segir:

  • Á milli 10 og 12 – tveir umræðuhópar – niðurstaða kynnt
  • Á milli 13 og 15 – tveir umræðuhópar – niðurstaða kynnt
  • Á milli 15 og 17 – Íslandsmót skákfélaga – forsvarsmenn athugi hvort þeir geti komist að lausn.

Nánari tillögun á fundinum verður tilkynnt í næstu viku.

Undirbúningsnefnd málþingsins skipa: Gunnar Björnsson og Þorsteinn Stefánsson (SÍ), Kjartan Maack (TR), Pálmi R. Pétursson (Hugin), Helgi Árnason (Fjölni), Halldór Grétar Einarsson (Breiðabliki) og Áskell Örn Kárason (SA).

- Auglýsing -