Stofan, hið magnaða skákkaffihús við Vesturgötu 3, mun í samstarfi við Vinaskákfélagið halda hraðskákmót næstkomandi miðvikudag, 15. ágúst kl. 20:00.
Tefldar verða níu umferðir með þriggja mínútna umhugsunartíma þar sem tvær sekúndur bætast við klukkuna eftir hvern leik. Umsjón mótsins verður í höndum Elvars Arnar Hjaltasonar, Héðinn Briem verður honum til aðstoðar.
Ekkert kostar að taka þátt en margs konar verðlaun verða í boði. Þar má nefna peningaverðlaun, gjafabréf á Stofuna og aðra staði auk þess sem medalíur verða veittar fyrir efstu þrjú sætin ásamt eignarbikar til sigurvegarans. Sérstök útdráttarverðlaun verða í lok móts sem allir keppendur munu eiga möguleika á að hreppa.
Fyrstu verðlaun: 5.000 kr. peningaverðlaun.
Önnur verðlaun: 3000 kr. gjafabréf sem gildir á Stofunni.
Þriðju verðlaun: 2000 kr. gjafabréf sem gildir á Stofunni.
Mótinu mun væntanlega ljúka um ellefuleytið eða þar um bil (kl. 23:00).
Hægt er að skrá sig í skráningarforminu hér að neðan en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum
Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna á Chess-Results.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga FIDE.















