Íslandsmót skákmanna í golfi 2018 verður haldið á Hólmsvelli (Leirunni) í Keflavík laugardaginn 25.ágúst n.k.

Keppt verður í tvíkeppni þar sem árangur í golfi og skák er lagður saman.

Nýtt í ár er að í stað hraðskákmóts þá eru núverandi skákstig notuð sem skákárangurinn. 

Við fáum rástíma á milli kl 12:30 og 13:20.

Skráning fer fram hér.

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.

Keppt er í eftirfarandi flokkum:

Golf og skák, án forgjafar.

Sá sem nær bestum árangri í golfi og skák hlýtur nafnbótina Íslandsmeistari skákmanna í golfi 2018. Notuð er sérstök tafla sem umbreytir höggafjölda á Hólmsvelli í skákstyrkleika (rating-performance). Skákstyrkleiki er samkvæmt stigaskrá FIDE (eða íslensk eða annars konar ef engin FIDE-stig eru fyrir hendi). Meðaltal þessara tveggja þátta gildir.

Unglingaflokkur

Einnig er keppt í unglingaflokki fyrir þá keppendur sem eru á grunnskólaaldri.

Golf með forgjöf.

Árangur í golfinu er mældur í punktum á vanalegan hátt. Sá sem nær flestum punktum að meðaltali hlýtur nafnbótina Punktameistari skákmanna í golfi 2017.

Aukaverðlaun

Fæst pútt á hringnum og mesta bæting.

Ýmsar upplýsingar

Þátttökurétt eiga allir skákmenn sem spila golf og hafa íslensk skákstig eða eru í íslensku taflfélagi eða tengdir skák.

Nánari upplýsingar á: http://chess.is/golf/

- Auglýsing -