Hannes og Guðmundur að tafli á EM landsliða á Krít 2017.

Hannes Hlífar Stefánsson (2511) og Guðmundur Kjartansson (2434) hafa báðir 3½ vinning eftir 5 umferðir á minningarmótinu um Korchnoi sem fram fer þessa dagana í Pétursborg.

Upplýsingar um árangur þeirra á mótinu hingað til:

Úrslit Hannesar og Guðmundar

Sjötta umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við rússneska FIDE-meistarann Mikhail Yashmetov (2365) en Gummi við Rússann Artem Odegov (2266).

- Auglýsing -