Ísland fór með sigur af hólmi í vináttukeppni gegn Níkaragva

0
1395

Í gær, sunnudag, fór fram fyrsta af fjórum vináttukeppnum sem „Team Iceland“ þarf að ljúka áður en keppni hefst í Heimsdeildinni í netskák.

Andstæðingar dagsins voru Níkaragvamenn en lið þeirra, sem teflir í 1. deild heimsdeildarinnar, endaði í 8. sæti og slapp naumlega við fall á keppnistímabilinu sem lauk nú í ágúst.

Lið heimamanna var talvert stigahærra á flestum borðum og sigraði nokkuð örugglega, hlaut 9,5 vinninga gegn 4,5 vinningum Níkaragvamanna.

Næsta viðureign á sunnudaginn

Næsta viðureign verður öllu stærri en sunnudaginn 2. september kl. 18 mætum við meistaraliði Úkraínu!

Dagskráin

  • 2. September kl. 18:00 – Bullet keppni 1/1
  • 2. September kl. 18:15 – Hraðskák 5/2
  • 2. september kl. 18:50 – Aukamót (lett mot) fyrir þá sem vilja tefla meira (7 umf. 3+2)

Ljóst er að Úkraína verður með fjölmennt og afar sterkt lið og þurfum við því að bæta rækilega í þátttöku fyrir viðureignina. Allir eru því hvattir til að ganga í Team Iceland fyrir keppnina, en allir geta tekið þátt. Sérstaklega eru stigalægri keppendur hvattir til þátttöku!

Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

- Auglýsing -