Soffía Arndís vann sína skák í dag. Mynd: Jón Fjörnir.

Soffía Arndís Berndsen, sem teflir í flokki stúlkna 10 ára og yngri, vann sína skák í sjöundu umferð EM ungmenna í dag. Vignir Vatnar Stefánsson (2260) gerði jafntefli við danska FIDE-meistarann Filip Boe Olsen (2368). Aðrar skákir Íslendinga töpuðust.

Félagarnir og skólafélagarnir; Vignir og Arnar. Mynd: Jón Fjörnir

Vignir er efstur íslensku keppendanna en hann hefur 4½ vinning. Vignir mætir ísraelska FIDE-meistaranum Or Globus (2402) á morgun en sá er fimmti stigahæsti keppenda flokksins. Eins og í dag munar aðeins einu borði að Vignir verði í beinni.

Anna Katarina við upphaf skákarinnar í dag. Mynd: Jón Fjörnir

Gunnar Erik Guðmundsson (1579), sem teflir í flokki 12 ára og yngri, hefur 3½ vinning, Anna Katarina Thoroddsen (1081), sem teflir í sama flokki og Soffía hefur 2½ vinning. Soffía og Arnar Milutin Heiðarsson (1749), sem teflir í sama flokki og Vignir hafa 2 vinninga.

Þjálfarinn Einar Hjalti Jensson á skákstað. Mynd: Jón Fjörnir.

Upplýsingar um árangur íslensku keppendanna má finna á Chess-Results.

- Auglýsing -