Sigurvegarnir þrír

Þrír keppendur urðu efstir og jafnir á Sinquefield-mótinu sem lauk í gærkveldi. Fyrir umferðina var Fabiano Caruana (2822) einn efstur. Hann gerði tilþrifalítið jafntefli við Wesley So (2780). Fjórir keppendur gátu þ.a.l. náð honum af vinningum og það gerðu tveir þeirra. Levon Arionan (2767) vann Alexander Grischuk (2766) eftir afar skemmtilega hróksfórn. Skák sem Ingvar Þór Jóhannsson á mjög líklega eftir að gera góð skil á eldhúsborðinu góða á hér Skák.is. Magnúsi Carlsen (2842) tókst svo að svíða Hikaru Nakamura (2777) í afar jafnteflislegu endatafli í 97 leikjum.

Carlsen kátur eftir sigurinn á Nakamura í gær. Mynd: Lennart Ootes/Grand Chess Tour.

Þar með urðu þeir þrír efstir og jafnir og þá hófst afar sérkennilegt ferli. Reglurnar eru þannig að sé þrír keppendur efstir og jafnir skuli þeir tveir efstu eftir stigaútreikning tefla til úrslita. Þá flækust málin. Allir höfðu þeir sömu innbyrðis úrslit (allt jafntefli), allir höfðu þeir unnið tvær skákir (2) og allir höfðu þeir unnið jafn margar skákir með svörtu (0). Í reglum mótsins sagði að þá ætti að draga um hverjir tveir kæmust áfram. Þetta líkaði hvorki Carlsen né Aronian og stungu upp á 3ja manna úrslitakeppni. Það vildi hins vegar Caruana ekki, skiljanlega, því hans bíður önnur aukakeppni við Nakamura um síðasta sætið í úrslitakeppninni í London! Niðurstaðan varð því eftir allar þessar samningaviðræður að sigurvegarar mótsins eru þrír. Engin aukakeppni um efsta sætið!

Lokastaða mótsins

Fjórir efstu menn Grand Chess Tour komast áfram í úrslitakeppnina í London í desember nk. Nakamura var efstur, Aronian annar og Maxime Vachier-Lagrave þriðji. Eftir tap Nakamura í gær fækkaði stigum Caruana, þar sem fleiri deildu efsta sæti, og Wesley So komst með upp að hlið hans í fjórða sæti. Nakmura var heldur betur ekki að gera Caruana greiða í gær með því að klúðra jafnteflislegri stöðu niður í jafntefli á móti Carlsen!

Lokastaðan í GCT. So og Caruana jafnir í 4.-5. sæti og þurfa að keppa um síðasta sætið í úrslitakeppninni í London í desember.

Aukakeppni Caruana og So hefst kl. 18. Fyrsta tefla þeir tvær 25+10 skákir. Verði jafnt tefla þeir 2ja skáka 5+3 einvígi þar til úrslit fást. Geri þeir sífellt 1-1 jafntefli getur skákstjóri ákveðið annað fyrirkomulag.

Sjá nánar á Chess.com

- Auglýsing -