Caruana vann So. Mynd Mike Klein/Chess.com

Fabiano Caruana  (2822) hlaut lokasætið í úrslitakeppni Grand Chess Tour sem fram fer í London í desember. Caruana og Wesley So komu jafnir í mark að GCT-stigum eftir Sinquefield-mótið í fjórða sæti en Caruana vann So 1½-½ í atskákeinvígi.

Caruna fylgir því Nakamura, Aronian og Vachier-Lagrave í lokakeppnina.

Lokastaðan. Fjórir efstu tefla til úrslita í London.

Í gær fór fram verðlaunaafhending Sinquefield-mótsins en þar voru sigurvegarnir þrír eins og fram kom í fréttum í gær. Keppendurnir þrír neituðu að tefla til úrslita þar sem þeim fyrirkomulagið ekki rétt og varð niðurstaðan sú að þeir teljast allir sigurvegarar mótsins.

Sigurvegarnir þrír; Caruana, Aronian og Carlsen. Mynd: Mike Klein/Chess.com.

Nánar á Chess.com.

- Auglýsing -