Evrópumóti ungmenna lauk fyrr í dag í Riga í Lettlandi með níundu og síðustu umferð. Vignir Vatnar Stefánsson (2260), sem tefldi í flokki 16 ára og yngri, vann í lokaumferðinni og hlaut 5½ vinning. Arnar Milutin Heiðarsson (1749), sem tefldi í sama flokki og Vignir, og Gunnar Erik Guðmundsson (1579), sem tefldi í flokki 12 ára og yngri, gerðu jafntefli. Gunnar Erik fékk 4½ vinning en Arnar hlaut 3 vinninga.

Gunnar Erik stóð sig vel og hækkar um 47 stig fyrir frammistöðu sína! Mynd: Jón Fjörnir

Stelpurnar, Anna Katarina Thoroddsen (1081) og Soffía Arndís Berndsen töpuðu báðar í dag. Anna hlaut 3½ vinning en Soffía fékk 3 vinninga.

Gunnar Erik hækkar um heil 47 skákstig fyrir frammistöðu sína og Vignir hækkar um 10. Hin þrjú voru öll að tefla á sína fyrsta stórmóti og koma reynslunni ríkari fyrir slík mót í framtíðinni!

Keppendurnir á EM ungmenna ásamt þjálfaranum Einari Hjalta Jenssyni. Mynd: Jón Fjörnir Thoroddsen

Fararstjóri krakkana var Einar Hjalti Jennsson.

Upplýsingar um árangur íslensku keppendanna má finna á Chess-Results.

- Auglýsing -