Í gær (sunnudag) fór fram þriðja af fjórum vináttukeppnum sem Team Iceland þarf að ljúka áður en keppni hefst í Heimsdeildinni í netskák.
Nú liggur fyrir að keppni í Heimsdeildinni hefst þann 24. september. Fyrirkomulagið er þannig að liðið hefur ákveðin tímaramma til að ljúka hverri umferð. Sem dæmi þá eiga lið að ljúka 1. umferð á tímabilinu 24. sept til 30. sept, 2. umferð á tímabilinu 1. okt – 7. okt o.s.frv.. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi deildarinnar, pörun o.fl. þegar nær dregur.
Team Iceland mætti liði Argentínu í gær, sunnudag. Viðureigninni var skipt í tvo hluta, líkt og hefðbundið er í Heimsdeildinni. Fyrst var tefld svokölluð leifturskák (1+1) og því næst tók við hraðskák (5+2). Í báðum tilfellum voru tefldar tvær skákir með skiptum litum.
Leifturskákin

Argentínumenn höfðu augljóslega dregið lappirnar í undirbúningi fyrir keppnina og mættu með umtalsvert stigalægra lið en Team Iceland. Meðalstig Íslendinga voru 1912 gegn 1426 stigum Argentínumanna.
Teflt var á 16 borðum.
Eðli máls samkvæmt vann Team Iceland stórsigur í þessum hluta, hlaut 27.5 vinninga gegn 4.5 vinningum Argentínumanna.
- Leifturskákin: https://www.chess.com/club/matches/live/team-iceland/1621
Hraðskákin

Svipað var uppi á teningnum í hraðskákinni og var aftur teflt á 16 borðum. Lið Argentínu mætti með umtalsvert stigalægra lið en Team Iceland. Í þetta skiptið var Argentína með meðalstig upp á 1729 stig gegn 2011 stigum Íslendinga.
Eitthvað afar óvænt og ótrúlegt átti sér stað í hraðskákinni, en lið Argentínu tók óvænt forystu snemma leiks og lét hana ekki af hendi. Argentína fór því með sigur af hólmi, hlaut 17.5 vinninga gegn 14.5 vinningum okkar manna.
NÆSTA VIÐUREIGN – ALLIR GETA VERIÐ MEÐ!
Næsta viðureign, sem fram fer sunnudaginn 16. sept kl. 18:00, verður gegn afar sterku liði Serbíu!
Lið Serba er gríðarlega þétt (sjá hér) og líklega eitt af sterkustu liðum deildarinnar. Þeir unnu allar viðureignir sínar í 1. deild á tímabilinu sem lauk í ágúst, en töpuðu mjög óvænt í úrslitum, fyrst gegn Rússum og næst gegn Úkraínu. Þeir enduðu því í þriðja sæti á síðasta tímabili.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
Dagskráin
- Sunnudagur 16. september kl. 18:00 – Bullet keppni (Ísland – Serbía) 1/1
- Sunnudagur 16. september kl. 18:20 – Hraðskák (Ísland – Serbía) 5/2
- Sunnudagur 16. september kl. 19:00 – Aukamót (lett mot) 3/2 Arena – fyrir þá sem vilja tefla meira (Íslendingar)

















