Flestum ætti að vera kunnugt um Heimsdeildina í netskák. Undanfarið hefur verið unnið að því að senda Íslenskt lið í keppnina. Liðið hefur teflt fjórar vináttukeppnir undanfarnar vikur og hefur nú uppfyllt öll þátttökuskilyrði.
Heimsdeildin er tefld í þremur deildum. Oftast byrja lið í neðstu deild og þurfa því að vinna sig upp.
Nú ber svo við að eitt sæti er laust í 1. deild á komandi keppnistímabili, sem hefst þann 1. október. Mótsstjóri deildarinnar hefur boðið „Team Iceland“ að tefla einvígi um sætið. Liðið sem sigrar fer beint í 1. deild.
Andstæðingurinn verður lið Chile. Þeir eru með þétt lið sem má ekki vanmeta.
Skilyrði fyrir þátttöku í aukakeppninni um sætið, sem og að vera með lið í 1. deild, er að geta mannað að lágmarki 20 borð. Allir eru því hvattir til að skrá sig í liðið og mæta til leiks!
Tefldar verða 5+2 skákir í einvíginu og ætti þátttaka ekki að taka lengri tíma en 30 mínútur.
Hvenær?
Einvígið við Chile fer fram á laugardaginn (29. sept) og hefst kl. 18. Teflt er á Chess.com og er beinn tengill á einvígið hér: https://www.chess.com/live#tm=1705
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið er hér að ofan en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!















