Íslenska liðið vann glæsilegan 2,5-1,5 sigur á liði Letta í 2. umferð opna flokksins á Ólympíuskákmótinu í Batumi. Lettarnir voru fyrrifram hærra skrifaðir enda númer 31 í styrkleikaröð mótsins á meðan íslenska liðið er númer 44.

Guðmundur Kjartansson setti tóninn á fjórða borði með gríðarlega frískri taflmennsku með svörtu mönnunum og bauð andstæðingi sínum snemma upp á peðsfórn. Lettinn þáði ekki boðið eftir langa umhugsun og missti algjörlega þráðinn nánast strax og fékk enga stöðu. Guðmundur fann smekklega leið til að vinna mann og eftirleikurinn varð auðveldur.

Hannes Hlífar gerði jafntefli á 3. borði en Héðin tapaði gegn Kovalenko eftir harða baráttu.

Það var því ljóst að úrslitin í viðureigninni réðust í skák Jóhanns Hjartarsonar. Okkar maður tefldi eins og algjör herforingi, vann peð eftir miðtaflið og sigldi sigrinum í höfn af miklu öryggi í endataflinu. Glæsilegur 2,5 – 1,5 sigur á Lettum staðreynd.

Íslenska liðið tapaði fyrir því hollenska í kvennaflokki. Nansý Davíðsdóttir tapaði á þriðja borði og Hollendingar tóku forystuna en Guðlaug Þorsteinsdóttir jafnaði metin þegar andstæðingur hennar lék skelfilega af sér en þó í stöðu þar sem Guðlaug stóð betur.

Því miður dugði sigur Guðlaugar skammt þar sem Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Lenka Ptacnikova sátu uppi með tapað tafl skömmu síðar og 1-3 sigur Hollendinga staðreynd.

Nánar verður sagt frá viðureignum íslensku liðanna í pistli síðar í kvöld.

- Auglýsing -