Fjórða umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand fór fram í dag. Í opna flokknum vann íslenska liðið enn og aftur 4-0 sigur, nú gegn Dóminíska lýðveldinu. Í kvennaflokki var tap niðurstaða dagsins, 1-3.

Opinn flokkur: Ísland – Dóminíska lýðveldið

Ísland er stigahærra á pappírnum og úrslitin því ef til vill ekki óvænt. Við mættum þeim ekki alls fyrir löngu og unnum einnig stórsigur þá. Dóminíska lýðveldið hefur IM á fyrsta borði en þrjá FIDE-meistara þar á eftir. Hannes Hlífar Stefánsson kom aftur inn eftir hvíld í gær og Jóhann Hjartarson hvíldi.

Vignir gaf tóninn, pakkaði sínum andstæðing saman á rétt 1,5 klukkutíma…ef það! Vignir vann peð og hélt kóngssókn sinni áfram og réð Araujo Sanchez engan veginn við taktísku skotin sem dundu á stöðu hans!

Þeir Stefánssynir virðast í góðu stuði á mótinu, Hannes lagði sinn andstæðing auðveldlega og kom okkur í 2-0. Guzman henti peðum sínum fram á báðum vængjum og ætlaði að hafa kónginn á miðborðinu, það reyndist ekki góð hugmynd gegn Hannesi!

Hilmir vann sigur með glæsilegri sóknartaflmennsku. Hilmir gaf peð í byrjun og hafði betri liðsskipan. Höggin dundu svo á hvítu stöðunni og lokaleikurinn ansi skemmtilegur en þar fann Hilmir loks hlutverk fyrir hvítreitabiskupinn sem hafið ekki hreyft sig alla skákina!

Síðasta skákin til að klárast var hjá Guðmundi Heimildir ritstjórnar benda til að slíkt hafi komið fyrir áður! Gummi var klár gegn hilðarafbrigði Mesa Cruz gegn franskri vörn. Guðmundur komst vel í gegnum flækjur í miðtaflinu og kreysti út sigurinn með gott biskupapar í endataflinu.

Fínn og áreynslulaus sigur að mörgu leiti

Í 5. umferð á morgun mæta strákarnir grjótharðri sveit Grikkja með stórmeistara á öllum borðum. Mikilvæg viðureign upp á framhaldið ef sveitin vill stimpla sig almennilega inn!

Kvennaflokkur: Ástralía – Ísland

Ástralarnir voru sterkir og stigahærri á öllum borðum. Hrund hvíldi í viðureigninni.

Lenka var fyrst að klára en hún var aldrei í teljandi vandræðum með svörtu og jafntefli samið í jöfnu endatafli. Mögulega hefði mátt reyna að halda skákunum gangandi á efstu tveimur borðunum en neðri borðin voru bæði með mjög erfiðar stöður þegar jafnteflin komu.

Andstæðingur Hallgerðar þrálék eftir að hafa haft betri færi í miðtaflinu. Erfitt var að sleppa úr þráleiknum án þess að veikja stöðuna mikið og tók Halla því boðinu.

Iðunn var hér komin með tapað tafl. Hvíta staðan hrakaði í miðtaflinu og skiptamunur og peð töpuðust í kjölfarið og ekki hægt að bjarga taflinu eftir það.

Guðrún fékk erfitt miðtafl þar sem erfitt var að laga kallana eða finna peða-framrásir sem gerðu gagn. Þrátt fyrir þetta komu færin og með smá keppnisheppni hefði Guðrún getað snúið taflinu og jafnað viðureignina. Það gekk ekki í þetta skiptið og Richards tefldi heilt yfir vel og reyndist erfiður andstæðingur.

1-3 tap aðeins og stórt og sveitin gerir vonandi betur næst þegar teflt verður við sterkari sveit!

Í 5. umferð mætir liðið Namibíu sem einhvern veginn kemur ansi oft úr hattinum í þessum pörunum en sveitirnir hafa mæst oft áður. Namibíu virðist hafa farið nokkuð fram og eru með mun stigahærri skákkonur en oft áður en samt er þetta viðureign sem ætti að vinnast undir eðlilegum kringumstæðum.

Ólympíu-tenglar!

- Auglýsing -