Stefán Bergsson sigraði á hraðskákmóti Skákþings Norðlendinga sem fram fór í gærkvöldi við frábærar aðstæður í Miðgarði í Skagafirði. Stefán hlaut 12 ½ vinning af 13 mögulegum. Í öðru sæti varð Jón Kristinn Þorgeirsson með 12 vinninga og í því þriðja Guðmundur Gíslason með 9 ½ vinning.
Jón Kristinn er hraðskákmeistari Norðlendinga þar sem Stefán er nú um stundir búsettur sunnan heiða.
Sjá á chess-results. https://s1.chess-results.com/tnr1500063.aspx?lan=1&art=1&turdet=YES&flag=30&SNode=S0
Skákþing Norðlendinga er nú í gangi. Guðmundur Gíslason er efstur eftir fyrri dag mótsins.
https://s1.chess-results.com/tnr1500077.aspx?lan=1&art=1&turdet=YES&flag=30&SNode=S0


- Auglýsing -












