Íslensku liðin fóru vel af stað á 46. Ólympíuskákmótinu sem hófst í dag í Samarkand í Úsbekistan. Teflt er í Silk Road International Exhibition Center við góðar aðstæður. Í opna flokknum vann liðið 4-0 gegn Brúnei þar sem hafa þurfti fyrir nokkrum punktum og hálfur punktur tapaðist gegn sveit Kambódíu í kvennaflokki.

Opinn flokkur: Ísland – Brúnei

Í fyrstu umferð mætti Ísland Brúnei (númer 152 í stigaröð). Guðmundur Kjartansson hvíldi. Lítum á viðureignina í borðaröð:

  1. borð: GM Vignir Vatnar Stefánsson (2531) – CM Pg Md Omar Ak Hafizon (2100)

Vignir stýrði hvítu í fyrstu skák sinni á þessu Ólympíuskákmóti. Á síðasta móti, 2024 í Búdapest, kom Vignir þreyttur til leiks eftir mikla mótahrinu og byrjaði á að hvíla í fyrstu umferð. Nú mætti hann ferskur og vann þægilegan sigur.

Tilfærsla drottningar svarts frá d8-b6-b4-d6-b8 er líklegast ekkert til að rita um í byrjanabækur skáksamtímasögunnar. Vignir fékk mikið rými og brátt mynduðust miklir veikleikar í svörtu stöðunni og Vignir komst heim í fyrsta strætó!

2. borð: IM Hilmir Freyr Heimisson (2342) – Muhammad Ahsanuddien Badarudin (1850)

Íslandsmeistarinn fékk svart og fékk betra tafl gegn Brunei-stráknum sem þó beit vel frá sér með 1800 stig. Yfirburðirnir í miðtaflinu dugðu nokkurn veginn en með bestu taflmennsku hefði 1800-stigamaðurinn náð að búa til þó nokkur vandamál fyrir Hilmi en sigurinn hafðist sem er fyrir öllu!

3. borð: GM Jóhann Hjartarson (2461) – Rodney Lim Teck Guan (1902)

Jóhann þurfti að hafa nokkuð fyrir sínum andstæðingi sem náði að rétta úr kútnum eftir aðeins verra tafl í byrjun og miðtaflinu. Í endataflinu fórnaði Jóhann manni fyrir hættulegt frípeð, ekki ósvipað og Fischer í frægri skák gegn Taimanov. Sá brúneiski var ekki vandanu vaxinn í endataflinu og endaði á að gefa frá sér frían leik í kapphlaupi og þá var ekki að sökum að spyrja.

4. borð: GM Hannes Hlífar Stefánsson (2425) – Ahmad Akmal (1843)

Hannes gjörsamlega yfirspilaði sinn andstæðing stöðulega í vel útfærðri skák. Hann byrjaði á að hrifsa sterkt peðamiðborð og í framhaldinu var eiginlega bara unun að fylgjast með úrvinnslu Hannesar!

Niðurstaðan 4-0 sigur!
Næst á dagskrá er viðureign við sveit Guatemala en litlu munaði að íslenska sveitin hefði farið á efstu borð gegn annaðhvort Úzbekum eða Indverjum, ekki ósvipað og 2024 þegar sveitin mætti Indverjum.

Kvennaflokkur: Ísland – Kambódía

Kvennalið Íslands mætti Kambódíu. Lenka Ptáčníková hvíldi í þessari viðureign

  1. borð: WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1995) – Rose Ann Flores (–)

Andstæðingur Hallgerðar tefldi mjög furðulega og passíft í byrjuninni og Halla fékk yfirburðatafl snemma. Yfirburðir hvíts héldust í tugi leikja en aldrei náðist að finna rothöggið. Sú kambódíska hélt sér einhvern veginn á floti þó ljóst væri að staðan hlyti að vera töpuð. Baráttan skilaði sér þegar Halla fipaðist við það að gleyma sér á klukkunni og var næstum fallin á tíma og lék í kjölfarið skákinni niður í jafntefli.

2. borð: WFM Guðrún Fanney Briem (1865) – Soporpatey Phon (1437)

Guðrún hélt lengst af vel á spöðunum með svörtu og var þolinmóð gegn eina stigamanni andstæðinganna. Guðrún gaf færi á sér tvisvar en sú kambódíska nýtti það ekki og Guðrún kláraði með glæsilegri mátsókn og máti!

3. borð: WCM Iðunn Helgadóttir (1869) – Sophary Chea (–)

Andstæðingur Iðunnar reyndi að blíðka goðin með því að senda Iðunni vinabeiðni á chess.com fyrir skákina. Iðunn svaraði því á mjög fjandsamlegum mótum við skákborðið, reif allt rými og bætti í það jafnt og þétt og lauk loks skákinni með drottningar-þríhyrningsmáti.

Sú kambódíska var felmtri slegin, sat um stund eftir skákina og hrasaði svo á 2. borðið þegar hún reyndi að standa upp og hellti niður vatni sem var þar (og á reyndar að vera bannað!). Þessi hamagangur hafði sem betur fer engin áhrif á Guðrúnu!

4. borð: Hrund Hauksdóttir (1817) – Chanthy Nov (–)

Hrundi lenti í smá vandræðum snemma tafls með svörtu. Hvítur átti tvö möguleika á að landa sleggjum en missti af þeim báðum. Smátt og smátt vann Hrund sig inn í taflið og tók yfirhöndina og styrkleikamunurinn kom vel í ljós í endataflinu.

Fínasti sigur og næst á dagskrá er þétt sveit Ítala.

Umferðir íslensku liðanna hefjast klukkan 10:00 að íslenskum tíma.

Ólympíu-tenglar!

Skýrendur FIDE eru meðal annars Peter Svidler, Cristian Chirila og Shahzod Vakhidov. Allar umferðir eru í beinni útsendingu án endurgjalds.

Um Ólympíuskákmótið:

46. Ólympíuskákmótið fer fram í Samarkand í Úzbekistan 15-27. september. Tefldar eru 11. umferðir þar sem tímamörk eru 90 mínútur fyrir 40 leiki, síðan 30 mínútur til viðbótar, 30 sekúndur fást per leik frá fyrsta leik. Lið fær 2 stig fyrir sigur í viðureign og 1 stig fyrir jafntefli. Eftir 11 umferðir ræður stigafjöldi liða en oddastig skera úr um ef lið eru jöfn og þá skiptir vinningafjöldi máli.

Ísland sendir bæði lið í opinn og kvennaflokk. Liðið er í 48. sæti á styrkleikalistanum með meðalstigin 2455. Kvennalið Íslands er í 80. sæti með meðalstigin 1953. Liðsstjóri opna flokksins er GM Helgi Ólafsson, sem er að mæta á sitt 21. ólympíuskákmót. Liðsstjóri kvennaliðsins er FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson.

Bandaríkin er stigahæstir í opna flokknum (meðalstig 2753), Ólympíumeistarar Indlands í öðru sæti sem tvöfaldir meistarar frá Búdapest 2024 og heimalandið Úsbekistan í þriðja. Indland er efst í kvennaflokki. Alls taka þátt um 400 lið sem er met. Þar á meðal Græland sem teflir í fyrsta skipti

- Auglýsing -