Guðrún að tafli í Samarkand

Sjöunda umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand var að ljúka hér í Úzbekistan. Íslensku liðin unnu bæði sigur í sínum viðureignum. Í opna flokknum hafði liðið nauman 2,5-1,5 sigur á S-Kóreu en kvennaliðið malaði Mozambique 3,5-0,5. Úzbekar gefa enn í á toppnum, hafa áfram fullu húsi og lögðu Kínverja 3-1 í dag sem eru frábær úrslit.

Opinn flokkur: Ísland – Suður-Kórea

Ísland var stigahærra á öllum borðum og fyrirfram hefði mátt búast við sigri í þessari viðureign en sama var á ferðinni og í síðustu viðureign fyrir frídag sem endaði 2-2 gegn Andorra. Hannes Hlífar hvíldi.

Borðstig Ísland stig S-Kórea stig
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531 IM Ahn, Hongjin 2328
2 IM Hilmir Freyr Heimisson 2342 FM Huh, Isaak 2324
3 GM Jóhann Hjartarson 2461 FM Kwon, Sehyun 2274
4 GM Guðmundur Kjartansson 2402 Lee, Younggyu 2055

Jóhanni varð ekki mikið ágengt gegn Petroffs-vörn Kwon á þriðja borði. Í 24. leik fékk sá S-kóreski hættulegt taktískt færi en náði ekki að nýta það. Staðan fjaraði fljótlega í jafntefli eftir það.

Guðmundur er að koma sterkur inn úrslitalega séð í seinni hlutann. Hann vann sinn þriðja sigur í röð og aftur með svörtu en fékk smá aðstoð þegar andstæðingur hans lék af sér manni í jafnteflislegu endatafli.

Byrjunin misheppnaðist eitthvað hjá Hilmi og fékk hann erfitt miðtafl sem hann náði ekki að vinna sig úr. Það kom ekkert hik á Huh sem tefldi vel og vann góðan sigur, staðan hér því orðin jöfn 1,5-1,5.

Vignir reyndist hetjan að þessu sinni. Hann virtist lengst af ekki hafa úr miklu að moða en náði að kreysta fram svíðing í endatafli og þar með svíðing í viðureigninni!

Ekki glæsilegasti sigurinn en við tókum hann!

Úzbekar hafa áfram fullt hús stiga en þeir tóku Kínverja 3-1 sem eru glæsileg úrslit. Indverjar gerðu sitt og lögðu England þrátt fyrir annað tap Sarin í röð. Líklegt að sá smávaxni verði settur á bekkinn í næstu umferð! Indverjar verða að treysta á að aðrar þjóðir taki stig af þeim.

Ísland hoppar upp í 9 stig og mætum við Ítalíu í næstu umferð.

Kvennaflokkur: Mozambique – Ísland

Ísland var stigahærra á öllum borðum. Hallgerður hvíldi.

Borð Mozambique stig Ísland stig
1 WFM Vilhete, Vania Fausto Da T. 1867 WGM Lenka Ptácníková 2082
2 WCM Sitoe, Cheila Andre 1748  WFM Guðrún Fanney Briem 1865
3 WCM Castro, Neusa Aridas De 1721 WCM Iðunn Helgadóttir 1869
4 Naira Sinoia 1559 Hrund Hauksdóttir 1817

Guðrún lagði sinn andstæðing að velli með nánast sömu taktík og á síðasta EM. Upp kom London-kerfið og Guðrún þurfti aðeins að rifja upp krefjandi teóríu sem gekk ekki alveg fullkomlega upp en á endanum kom styrkleikamunurinn í ljós!

Hrund missti gjörunnið tafl niður í jafntefli, svekkjandi úrslit miðað við gang mála í skákinni.

Lenka lagði Vilhete að velli, að einhverju leiti ósanngjarnt gagnvart Vilhete sem getur teflt ansi traust en hefur nú tapað þrisvar gegn Íslandi! Vilhete með hvítt fékk betra miðtafl en Lenka jafnaði taflið og tók yfir smátt og smátt.

Andstæðingur Iðunnar hafði þá egar beðið í vel rúmar 20 mínútur ca. mát í 2 leikjum. Iðunn vann auðveldan sigur og taflmennska hvíts á köflum kjánaleg sem var toppað með þessari bið í lokin sem fór eiginlega vel yfir velsæmismörk!

Fínn sigur en 4-0 hefði verið fínt til að fá í oddastiga-sparibaukinn.

Liðið hefur 8 stig í „hálfleik“ en Kazakar og Kínverjar eru ennþá í forystu eftir innbyrðis jafntefli.

Ólympíu-tenglar!

- Auglýsing -