Áttunda umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand hefst kl. 10:00. Andstæðingar dagsins eru Ítalía í opnum flokki og Mexíkó í kvennaflokki. Jóhann Hjartarson og Hrund Hauksdóttir hvíla. Þrjár umferðir eru eftir eftir daginn í dag.

Opna liðið vann Suður-Kóreu 2½–1½ í gær. Vignir og Guðmundur unnu, Jóhann gerði jafntefli, Hilmir tapaði. Eftir sjö umferðir er Ísland með 9 liðsstig og 18½ vinninga og er í 43. sæti.

Kvennaliðið vann Mósambík 3½–½ í gær. Lenka, Guðrún og Iðunn unnu, Hrund gerði jafntefli. Liðið er með 8 liðsstig, 18 vinninga og er í 68. sæti.

Opinn flokkur: Ítalía – Ísland

Allir fjórir Ítalir eru stórmeistarar og stigahærri á öllum borðum. Hannes kemur inn; Jóhann hvílir.

Borð Ítalía stig Ísland stig
1 GM Lorenzo Lodici 2573 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531
2 GM Luca Moroni 2556 IM Hilmir Freyr Heimisson 2342
3 GM Francesco Sonis 2539 GM Hannes Hlífar Stefánsson 2425
4 GM Sabino Brunello 2536 GM Guðmundur Kjartansson 2402
Vignir er með 5 af 7 og mætir Lodici. Hilmir teflir við Moroni, Hannes við Sonis og Guðmundur við Brunello. Liðssigur eða jafntefli gegn þessari sveit væru frábær úrslit

Kvennaflokkur: Mexíkó – Ísland

Mexíkó er stigahærra á öllum borðum. Iðunn kemur inn; Hrund hvílir.

Borð Mexíkó stig Ísland stig
1 WIM Zenia Corrales Jiménez 2125 WGM Lenka Ptácníková 2082
2 WIM Tania Miranda Rodríguez 2041 WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 1995
3 WCM Mia Fernanda Guzmán García 2007 WFM Guðrún Fanney Briem 1865
4 WCM Scarlett Daniela Olea Valle 1975 WCM Iðunn Helgadóttir 1869

Lenka fær svart gegn Corrales. Hallgerður fær hvítt gegn Miranda. Guðrún, sem er með 5 af 7, fær svart gegn Guzmán. Iðunn mætir Olea.

Hverjir eru efstir á mótinu?

Eftir sjö umferðir, með fjórar eftir (að þessari meðtalinni):

Opinn flokkur: Úsbekistan er á toppnum 14 liðsstig. Hefur unnið allar sínar viðureignir. Með 12 liðsstig eru Holland, Indland, Þýskaland, Aserbaídsjan og Armenía. Úsbekistan mætir Þýskalandi í dag, Indland mætir Aserbaídsja og Holland teflir við Armenía.

Kvennaflokkur: Kína og Kasakstan með 13. Indland, Búlgaría, Georgía, Armenía og Mongólía með 12. Kasakstan mætir Indlandi og Georgía mætir Kína.

Vefsíður til að fylgjast með

Vefsíður til að fylgjast með

- Auglýsing -