Þann 26. september 2026 fagnar Menntaskólinn við Hamrahlíð 60 ára afmæli. Af því tilefni söfnum við hér 60 skákþrautum sem áhugasamir geta spreytt sig á að leysa.
Fyrsti rektor MH, Guðmundur Arnlaugsson, var landsliðsmaður í skák, virtur skákdómari og mikill áhugamaður um skákdæmi og tafllok. Eftir hann liggja bækur og fjöldi greina um skákdæmi og tafllok, auk skrifa um aðra þætti skáklistarinnar. Að hans frumkvæði var skák sett á námsskrá í MH og síðan þá hefur skák verið í hávegum höfð í skólanum.
Allar þessar þrautir hafa áður birst í bókum eða greinum Guðmundar Arnlaugssonar.
Verið einnig velkomin á opið hús í MH í tilefni afmælisins 26. september. Milli 11 og 13 verður hægt að tefla og leysa skákþrautir.
- Auglýsing -
















