Í dag, laugardag, fór fram úrslitaviðureign um laust sæti í 1. deild Heimsdeildarinnar í netskák .

Andstæðingur dagsins var afar þétt lið Síle, sem mætti með nokkra sterka meistara og einn öflugan stórmeistara. Ekkert kom þó á óvart í uppstillingu Síle, nema kannski helst hversu fámennir þeir voru.

Í keppni sem þessari skiptir gríðarlega miklu máli að vera með góða breidd í liðinu. Öll borð skipta jafn miklu máli og allir vinningar telja jafnt.

Í ljósi þess hversu þétt lið Sílemanna er, var aðeins eitt að gera, vera með þéttara lið. Lið Íslands var þannig afar vel skipað og talsvert öflugra en lið andstæðinganna.

Efstu borð okkar manna voru gríðarlega öflug og liðið allt í heild, alveg niður á neðsta borð, var talsvert þéttara en lið andstæðinganna.

Íslenska liðið náði fljótlega talsverðu forskoti og lét það ekki af hendi. Góður (flippsturlaður!) sigur vannst, 32 vinningar gegn 24 vinningum andstæðinganna og það þrátt fyrir að fulltrúi Team Iceland í Batumi lenti í smá tæknibilun og neyddist því til að gefa báðar skákir sínar.

Liðsstjórar Team Iceland færa öllum bestu þakkir fyrir þátttökuna og sérstaklega þeim sem mættu og fengu ekki andstæðinga að þessu sinni. Það var afar ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga á keppninni og hlökkum við til komandi átaka í vetur. Það er enn nóg pláss í Team Iceland og einfalt að taka þátt með því að smella hér og þar á „join“.

Skoða má viðureignina og allar skákir keppninnar hér: https://www.chess.com/club/matches/live/team-iceland/1705

Team Iceland hefur því tryggt sér sæti í deild þeirra bestu á komandi keppnistímabili (sem hefst 1. okt). Þar bíða okkar gríðarlega öflug lið í vetur og eru allir hvattir til að taka þátt í viðureignum vetrarins með Team Iceland!

Til gamans má geta þess að Ísland er ekki eina nýja liðið í keppninni, en Bandaríkin, Kanada, Brasilía og Danmörk eru einnig ný lið, en þau verða öll að hefja keppni í 3. deild.

1. deild (lágmark 20 borð) 2. deild (lágmark 10 borð) 3. deild (lágmark 5 borð)
Srbija Tim Chile Team China 中国队
Team Russia Nicaragua Chess Team Holland
Team Ukraine Team France Team Galicia
Team Peru Team of the Czech Republic Team South Africa
Argentina Live Chess Team México Team USA
Team Slovakia Team Venezuela Team Denmark
Ecuador Live Chess Team England Team Brazil
Iceland Team Italia Team Canada
- Auglýsing -