Nansý vann góðan sigur í fraumran sinni á Ólympíumóti.

Íslenska liðið sem teflir í opna flokki ólympíumótsins í Batumi í Georgíu, sem hefst á mánudaginn, er skráð í 44. sæti af 185 þátttökuþjóðum. Þetta er sama staða og var uppi fyrir síðasta ólympíumót sem haldið var í Baku í Aserbaídsjan haustið 2016 en þá hafnaði íslenska sveitin í 60. sæti eftir hörmuleg úrslit í lokaumferðum mótsins en byrjaði vel. Á undanförnum ólympíumótum hafa verið tefldar ellefu umferðir og gefin tvö stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Vinningatalan hefur því ekkert sérstakt vægi og góður árangur á lokasprettinum skiptir höfuðmáli.

Sú breyting varð á íslenska liðinu að Hjörvar Steinn Grétarsson hætti við þátttöku og Guðmundur Kjartansson var valinn í hans stað. Liðið er þannig skipað: 1. borð: Héðinn Steingrímsson, 2. borð: Jóhann Hjartarson, 3. borð: Hannes Hlífar Stefánsson, 4. borð: Helgi Áss Grétarsson, 5. borð: Guðmundur Kjartansson. Greinarhöfundur er liðsstjóri.

Íslenska liðið í kvennaflokki er skipað Lenku Ptacnikovu á 1. borði, Guðlaugu Þorsteinsdóttur á 2. borði, Nansý Davíðsdóttur á 3. borði, Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur á 4. borði og Sigurlaugu Friðþjófsdóttur á 5. borði. Liðsstjóri er Björn Ívar Karlsson. Eini nýliðinn í hópnum er Nansý Davíðsdóttir, sem er 16 ára gömul.

Mikil uppsöfnuð reynsla er til staðar í báðum liðum; Guðlaug tefldi á sínu fyrsta ólympíumóti í Buenos Aires fyrir 40 árum og Sigurlaug fyrir 38 árum á Möltu eins og Jóhann. Greinarhöfundur fer nú á sitt 19. ólympíumót en tefldi fyrst í Haifa í Ísrael árið 1976.

Bandaríska liðið á titil að verja í opna flokknum og margir spá því aftur sigri. Sveitin er skipuð sömu mönnum og í Baku fyrir tveim árum: Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura, Wesley So, Samuel Shankland og Ray Robson. Bandaríkjamenn raðast efstir í styrkleikaröðinni og þar á eftir koma Rússar, Kínverjar, Aserar, Indverjar og Úkraínumenn. Anand kemur nú aftur inn í lið Indverja en Magnús Carlsen tekur sér frí vegna heimsmeistaraeinvígisins í nóvember en hann skilaði Norðmönnum í 5. sæti síðast, sem er langbesti árangur Norðmanna á ólympíumóti frá upphafi.

Undanfarin ár hefur verið bein útsending frá öllum viðureignum á ólympíumótunum. Slóðin á heimasíðu mótshaldarans er: https://batumi2018.fide.com/en.

Nýr forseti FIDE verður kosinn í Batumi

Þing Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, verður haldið samhliða ólympíumótinu og síðustu daga þess mun draga til tíðinda því þá verður kosinn nýr forseti FIDE, en Kirsan Iljumzhinov, sem setið hefur frá árinu 1995, dregur sig í hlé. Frambjóðendur eru þrír, þar af einn heimsþekktur skákmaður, enski stórmeistarinn Nigel Short. Aðrir í framboði eru Grikkinn Georgios Makropoulos, sem undanfarin ár hefur verið starfandi forseti FIDE, og Rússinn Arkady Dvorkovich, fyrrverandi varaforsætisráðherra Rússlands. Kosningafyrirkomulagið hjá FIDE hefur verið þannig þegar þrír hafa verið í framboði að fái enginn hreinan meirihluta í fyrstu umferð þá fellur sá úr leik sem hlýtur fæst atkvæði og síðan er kosið aftur milli hinna tveggja. [Aths. ritstjóra. Kerfið er reyndar þannig að kosið er á milli allra í annarri umferð. Sá vinnur sem fer flest atkvæði – ekki þarf meirihluta.]

Skáksamband Íslands studdi framboð Garrí Kasparov í kosningu til forseta FIDE í Tromsö í Noregi árið 2014, en af einhverjum ástæðum gefur stjórn SÍ ekki upp afstöðu sína nú. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, situr þing FIDE í Batumi.

Skákþættir Helga Ólafssonar í Morgunblaðinu birtast viku síðar á Skák.is. Þessi skákþáttur birtist 22. september 2018.

Skákþættir Morgunblaðsins.

- Auglýsing -