Íslensku liðin unnu bæði sigra í 5. umferð Ólympíuskákmótsins í Batumi. Fyrirfram hefði mátt búast við auðveldum sigrum en sú varð ekki raunin.

Opinn flokkur:

Íslendingar voru stigahærri á öllum borðum og Guðmundur Kjartansson setti tóninn tiltölulega snemma með nokkuð auðveldum sigri.

Helgi Áss Grétarsson lenti hinsvegar í vandræðum með sinn andstæðing. Helgi bauð upp á of taktíska stöðu þar sem auðvelt var að misstíga sig. Þrátt fyrir að Martin Walker andstæðingur hans sé kominn undir 2100 stig þá var hann áður með 2350 stig og er FM og því ljóst að um hættulegan andstæðing var að ræða.

Hér fór Helgi í aðgerðir sem reyndust byggðar á yfirsjón. 24. Rd5 exd5 25.cxd5 d3! þessi millileikur snýr taflinu og Helgi hafði misst af honum.

Héðinn fékk ekkert í sinni skák og þrátt fyrir tilraunir varðist andstæðingur hans vel og jafntefli niðurstaðan. Aftur kom það því í hlut Jóhanns Hjartarsonar í stöðunni 1.5-1.5 að „sigla þessu heim“.  Það er í raun nokkuð merkilegt að í báðum skákum Jóhann í þessum stöðum hefur riddari á g7 verið lykilmaður og unnið peð með því að hoppa svo á h5.

Jóhann lék 47…Rg7 og peðið á h5 er í vandræðum. Framhaldið teflist 48.Hf2 Kg8 49.Rh4 Rxh5 og þrátt fyrir að mikil tæknileg úrvinnsla sé eftir nægði þetta Jóhanni til sigurs.

Skákir karlanna eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

 

Kvennaflokkur:

Viðureignin við Maltverja reyndar eins og að drekka malt fyrir íslensku stelpurnar. Ísland var stigahærra á öllum borðum og lenti hvergi í teljandi vandræðum.

Sigurlaug átti snotra fórn gegn andstæðingi sínum á 4. borði

Síðasti leikur svart 10…He8? var einstaklega slakur. Hvítur klárar nú dæmið með 11.Bxf7! og Rg5+ í framhaldinu. Svarta drottningin fellur og eftirleikurinn auðveldur.

Skákir úr kvennaflokki eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

 

Gangur mótsins

Fjögur lið eru nú efst með fullt hús en það eru Azerar, Tékkar, Pólverjar og Úkraína. Mjög góð mót hjá Tékkum og Pólverjum sem eru óvæntustu liðin í þessum topp pakka. Stóru sveitirnar eru ekki langt undan og mikið eftir af mótinu.

Í kvennaflokki eru það óvænt aðeins bandarísku stúlkurnar sem hafa ennþá fullt hús.

Stefnir í mikla spennu í báðum flokkum!

Frídagurinn

Bermuda partýið var haldið á föstudeginum fyrir frídaginn. Bermuda liðið bauð konum frítt og 10 GEL inn fyrir karla. Gríðarlega góð mæting var í boðið og gaman að hitta þar erlenda vini og eignast nýja. Skemmtilegast er oft að spjalla við Afríku skákmennina og eins sjá allar stjörnurnar.

Frídagurinn notuðu flestir í að skoða sig um. Einhverjir fóru í fjallaferð með leiðsögumönnum en flestir aðrir fengu sér göngutúra í Batumi og skoðuðu sig um.

6. umferð

Viðureignir 6. umferðar eru krefjandi. Karlaliðið mætir Kazakhstan á meðan að kvennaliðið mætir liði Slóvena. Bæði lið eru ofar en íslensku liðin í styrkleikaröð.

Skák dagins:

Shakhriyar Mamedyarov hefur verið á miklu skriði undanfarið ár eða svo. Hann eignaðist á dögunum sitt fyrsta barn en það virðist ekki hafa áhrif á hann. Azerar urðu Evrópumeistarar í fyrra og ætla sér greinilega stóra hluti hér í Batumi. Azerar og Armenar eiga í mikilli baráttu utan skákborðsins og því alltaf pólitískur undirtónn í viðureignum þeirra. Skákmenn þessara landa virðast þó miklir mátar og fylgja kjörorðunum „Gens Una Sumus“

En Mamedyarov tefldi af fítonskrafti í opna afbrigðinu í Spánverjanum gegn Levon Aronian

Hér má sjá lokaandartök þessarar skákar….

 

Heyrst hefur:

  • Að Helgi Áss Grétarsson hafi slasað FIDE dindil Noregs í fagnarlátum þegar Liverpool jafnaði gegn Chelsea í gær.
  • Íslandsvinurinn Fiona Steil-Antoni og stöllur hennar frá Lúxemburg er með 4 sigra og 1 tap, frábært mót hjá þeim!
  • Dvorkovich gaf víst Makro köku í afmælisgjöf þar sem í stað „65 years“ á kökunni voru „65“ votes. Dvorki með húmorinn á réttum stað!

 

Áframhaldandi umfjöllun verður hér á Skak.is

 

Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 5.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Myndapakki: Íslenskir skákmenn á Facebook

 

Hlaðvarp 5. umferð: Ólympíuhlaðvarpið

- Auglýsing -