Mikið gengur á fyrir framan og bak við tjöldin á Ólympíuskákmótinu en forsetakosningar FIDE fara fram á miðvikudaginn. Í gær kom úrskurður siðanefndar FIDE (Ethics commission) um Serbíu en forseti skáksambandsins var sakaður um að hafa þegið mútur en sambandið fékk €40.000 frá rússnesku fyrirtæki Í framhaldinu var skipt um FIDE-fulltrúa fyrir Serbíu, þ.e. forsetinn sjálfur varð fulltrúi á kostnað annars, sem er í stuðningsliði Makros.
Landið fer 6 mánaða bann FIDE-þingum. Það þýðir í raun og veru að Serbía getur ekki kosið núna og því tapar Dvorkevich einu atkvæði.
Aðkoma Dvorkevich þótti ekki sönnuð og hann ekki settur í bann eins og Makro hafði farið fram á. Báðir aðilar fögnuðu sigri.
An important first legal win for our #FIDEForward team on ETH case 5/2018 against the methods used by our rivals: Cogoljevic is sanctioned & excluded as delegate of the Serbian Chess Federation from the #FIDEelections2018. Case 6/2018 examines now the other delegates in question. pic.twitter.com/jBTHIN8OFG
— Georgios Makropoulos (@makro_chess) September 30, 2018
Not guilty. And everyone knew that. Confident in the last phase of the FIDE elections! https://t.co/v3Idnorqh1
— Arkady Dvorkovich (@advorkovich) September 30, 2018
Ítarlega frásögn Macauley Petersen má lesa á Chessbase.
Mikið gekk á í EXPO-salnum í gær. Í bás Makropoulos var bæklingar þar sem félagar Dvorkevich voru sakaðir um reyna múta skáksambandböndum. Að sögn stuðningsmanna Rússans hafði fallið dómur í Georgíu um að þessi bæklingur væru ærumeiðandi og því ætti að fjarlægja hann.
Lögfræðingur á vegum Dvorkevich ætlaði að fjarlægja bæklinginn og urðu úr því mikil læti eins og sjá má í þessu myndbandi.
Zurab Azmaiparashvili tók að sér hlutverk sáttasemjarans og tókst lægja öldurnar.
Ítarlega frásögn um átök gærdagsins má finna á Chess.com.
Í gær hittust Skáksambönd Norðurlandanna og ræddu málin. Ekkert norrænu sambandanna hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðendur að finnska skáksambandinu undanskyldu sem styður Nigel Short í fyrstu umferð.

Spennan fyrir kosningarnar er gríðarleg enda eru aðeins tveir dagar í kosningarnar. Andrúmsloftið er þrúgandi.
Farið verður betur yfir kosningabaráttuna í Skákhlaðvarpinu í dag.















