Ólympíuskákmótið í Batumi – Pistill 6. umferðar

1606
0

6. umferð Ólympíumótsins í skák fór fram fyrr í dag í Batumi í Georgíu.

Andstæðingar Íslands í opnum flokki var lið Kazakhstan en í kvennaflokki mættu Íslendingar Slóveníu.

Opinn flokkur:

Kazakhstan voru stigahærri á öllum borðum þó ekki munaði miklu og mest á 3. borði. Jöfn viðureign var engu að síður það sem hefði mátt búast við.

Héðinn hefur engan veginn náð sér á strik í þessu móti og var fyrstur til að tapa sinni skák í þessari viðureign. Héðinn hafði hvítu mennina og opnaði taflið með kóngspeði 1.e4. Héðinn er vanari að leika 1.d4 og kannski hefur andstæðingur hans grunað eitthvað því hann lék sjaldgæfum leik í Sikileyjarvörn.

6…h5!? hefur mjög sjaldan verið leikið hér og Kazakinn hefur því náð að sleppa alfarið við undirbúning Héðins. Í miðtaflinu virtist svarta staðan flæða mun betur og hvítur virkaði planlaus. Reiðarslagið kom svo hér.

 

Kazakinn er búinn að þjarma jafnt og þétt að hvítu stöðunni og eftir 36…Hxg2 37.Hxg2 Dxc4 gafst Héðinn upp.

Guðmundur var næstur að klára með svörtu mennina á 4. borði.

Gummi tefldi hér 8…b6!? sem er tiltölulega nýmóðins afbrigði sem Aronian, Mamedyarov og Caruana hafa teflt en Bacrot er ef til vill helsti stuðningsmaður þessa afbrigðis og tefldi það t.a.m. í mikilvægri skák í PRO Chess League gegn Helga Ólafssyni. Helgi stóð þó betur í miðtaflinu í þeirri skák. Svartur fórnar skiptamun í aðalafbrigðinu eftir 9.Re5 Dxd4 10.Bxa8 Dxe5
þannig tefldist skákin.Í miðtaflinu kom upp mjög sérstök staða þar sem svartur hafði þrjá létta menn gegn tveimur hrókum hvíts. Vandamál svarts var að fá mennina til að tala saman og náði hvítur að nýta frumkvæði til að vinna a-peð hvíts og í kjölfarið gera það að drottningu. Það nægi til sigurs þó upp hefði komið drottning gegn þremur léttum mönnum þar sem hvítur átti tvöfalda árás sem vann einn af léttu mönnum svarts.
Erfið staða þar sem nú vorum við komnir 0-2 undir.

Murtas Kazhgaleyev fórnaði peði í byrjuninni gegn Hannesi.

17..c5 var leikið og Hannes tók allt 18.axb5 axb5 19.Hxa8 Bxa8 20.dxc5 Rxc5 21.Bxb5 og skipti í kjölfarið upp á drottningum. Tölvurnar meta stöðuna nálægt jöfnu en hvítur er peði yfir í endatafli.

Því miður fyrir Murtas eru þetta akkúrat stöður sem henta Hannesi. Tæknilegar stöður þar sem þarf lítið að reikna. Hannes bætti stöðuna jafnt og þétt og fékk frípeðið til að telja þrátt fyrir harða vörn Kazakans.

Jóhann var í harðri baráttuskák á 2. borði með svörtu mennina gegn Ismagambetov og miklar tilfæringar í gangi þegar andstæðingur Jóhanns skrikaði fótur.

Hér lék Ismagambetov 36.Rf3 og merkilegt nokk nánast hrynur hvíta staðan. Jóhann svaraði með besta leiknum 36…Dxa4 og eftir 37.Hxd1 Dxc4. Fljótlega eftir það vann Jóhann einnig skiptamun og virtist skákin aðeins spurning um úrvinnslu. Kazakinn var þó seigur að sprikla en Jóhann gat klárað dæmi á snotran hátt hér:

Hér lék Jóhann 60…Dc6? en 60…Dxg5!! hefði líklega þvingað uppgjör þar sem 61.Dxg5 Hh7+ endar með máti.

Í kjölfarið fór þreytan að segja til sín eftir frábærlega teflda skák hjá Jóhanni og þráleikur varð niðurstaðan og algjörlega grátlegt tap gegn Kazökum þar sem við áttum skilið jafnteflið!

Skákir karlanna eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

Kvennaflokkur:

Andstæðingar kvennaliðsins var ungt og þétt lið Slóveníu, sem voru töluvert stigahærri á öllum borðum.

Sigurlaug var fyrst að klára á 4. borði en hún hafði hvítt gegn WFM Vidic. Teflt var uppskiptaafbrigðið í spænskum leik og fékk Sigurlaug vel viðunandi stöðu eftir byrjunina. Í miðtaflinu fór hún svo í óhagstæð uppskipti og eftir það réð svartur ferðinni í tvöföldu hróksendatafli. Sigurlaug varðist vel en skipti að lokum upp í peðsendatafl sem reyndist tapað.

Jóhanna Björg hafði svart á 3. borði gegn WGM Krivec. Jóhanna fékk fína stöðu út úr byrjuninni með óvæntri peðsfórn sem hún hafði skoðað fyrir skákina. Krivec tók þá skynsamlega ákvörðun og létti á stöðunni með drottningaruppskiptum og í framhaldinu varð Jóhönnu fótaskortur og Krivec fékk betra endatafl. Erfitt var að eiga við hvíta biskupaparið í framhaldinu og Krivec vann vel úr yfirburðum sínum.

Guðlaug hafði svart á 1. borði gegn WIM Unuk, sem hefur verið að standa sig vel að undanförnu og m.a. unnið Evrópu- og Heimsmeistaramót u18. Upp kom slavnesk-vörn og fékk Gulla heldur þrönga en trausta stöðu. Í miðtaflinu urðu henni á stöðuleg mistök með b5 og eftir það átti Unuk greiða leið í gegnum drottningarvænginn. Hún innbyrti sigurinn svo af öryggi.

Nansý hafði hvítt á 2. borði gegn WFM Janzelj. Upp kom tískuvörn og Nansý fékk prýðilega stöðu út úr byrjuninni. Hún tefldi hratt og vel og sú slóvenska var undir mikilli pressu. Nansý átti margar vænlegar leiðir til þess að velja úr og hélt áfram að gera Janzelj lífið leitt. Eftir 31. leik svarts, 31…Hd8 kom þessi staða upp:

Hér gat Nansý leiki 32. c4!! með hugmyndinni 32… Hxb4 33. Df3 og svartur er varnarlaus á kóngsvængnum. Framhaldið gæti orðið: 33…Hxc4 34. Rf6+ Kh8 35. Rxd7 Hxd7 36. Df7 og hvítur mátar. Þess í stað lék Nansý 32. h3 og var áfram með betri stöðu en í framhaldinu fórnaði Janzelj skiptamun og svo lifnaði aðeins yfir biskupapari hennar. Hún snéri svo taflinu við og vann því miður sigur að lokum.

0-4 tap því niðurstaðan sem var óþarflega stórt miðað við stöðurnar.

Skákir úr kvennaflokki eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

Gangur mótsins

Azerar eru nú efstir ásamt Pólverjum. Við flugum einmitt með Pólverjum hér til Batumi en þeir eru að koma mjög á óvart. Bartel er mjög sterkur skákmaður sem vantar í lið þeirra og fréttaritari Skak.is fékk 1/2 gegn tveimur stigalægstu Pólverjunum í síðasta alþjóðlega móti sínu. Við ætlum að spá því að Pólverjar magalendi í næstu umferðum!

Bandaríska sveitin í kvennaflokki gerði jafntefli og Georgía og Armenía hafa nú náð þeim.

7. umferð

Íslenska liðið í opnum flokki mætir liði Tajikistan, sem skartar hinum sterka stórmeistara Faruk Amonatov á 1. borði. Kvennaliðið mætir Túrkmenistan sem hefur staðið sig mjög vel á mótinu hingað til.

Skák dagins:

Vassily Ivanchuk er mikið ólíkindatól. Hann getur unnið nánast alla og er einn af fáum skákmönnum sem Kasparov t.d. viðurkenndi að hann óttaðist. Í dag náði Ivanchuk sér hinsvegar ekki á strik og tapaði fyrir „einhverjum Pólverja“ með furðulegri yfirsjón! Ivanchuk stóð vissulega verr en síðasta leikur hans er allt að því fáranlegur!

Umdeilt mál:

Sagar Shah hjá ChessBase India er alltaf klár í bátana og náði þessu á myndband:

Heyrst hefur:

  • Að fjöldi starfsmanna Ólympíumótsins hafi dregist inn í stóra hækjumálið og það hafi endað með því að einhverjir þeirra fengu hárblásararæðu frá hátt settum aðila.
  • Að Björn Ívar liðsstjóri kvennaliðins haldi áfram að draga að sér sterka stórmeistara við undarlegar aðstæður.
  • Að hluti íslenska hópsins sé sólbrenndur eftir heitan og sólríkar frídaginn.
  • Að hinn mjaðmagrindarbrotni kínverski stórmeistari Ding Liren hafi haldið fast um hækjurnar sínar þegar hann sá að Björn Ívar var farinn að gefa þeim auga.
  • Að eldri og reyndari liðsmönnum íslenska kvennaliðsins hafi fundist slóvensku andstæðingar þeirra vera full léttklæddar í umferð dagsins en þær skörtuðu stuttum pilsum og blússum í hlébarðamynstri. Íslenska liðið var eins og áður í landsliðsbúningunum en komið hefur til tals að skipta yfir í léttari klæðnað eftir úrslit dagsins.

Áframhaldandi umfjöllun verður hér á Skak.is

 

Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 6.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Myndapakki: Íslenskir skákmenn á Facebook

 

Hlaðvarp 6. umferð: Ólympíuhlaðvarpið

- Auglýsing -