Íslensku landsliðin á Ólympíumótinu í skák áttu ekki góðan dag í dag.
Kvennalandsliðið sá aldrei til sólar og varð að lúta í gras 0-4 gegn sterkri sveit Slóvena. Íslenska liðið veiktist töluvert við það að Lenka Ptacnikova gat ekki teflt í dag en búast má við henni í liðinu aftur á morgun í 7. umferð.

Karlaliðið í opnum flokki atti kappi við Kazakhstan. Tiltölulega snemma lenti liðið 0-2 undir en góðu fréttirnar voru þær að við stóðum til vinnings í hinum skákunum. Hannes Hlífar Stefánsson sigldi sinni skák faglega til sigurs í endatafli og vinningurinn virtist nánast formsatriði hjá Jóhanni Hjartarsyni. Jóhann tefldi sína skák skínandi vel og var við það að ná enn einum vinningnum í hús þegar hann missti af vinningsleiðs sem hefði knúið uppgjöf á staðnum. Þess í stað náði Kazakinn að sprikla og mynda sér mótspil og náði loks að þvinga þráleik. Algjörlega grátlegt 1.5-2.5 tap þar sem 2-2 jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit.

Batamerki voru þó á karlaliðinu þrátt fyrir tapið og vonandi fylgja menn því eftir.
Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 5.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
















