Sigur vannst í dag í opnum flokki á liði Tajikistan. Á sama tíma tapaði kvennaliðið gegn Túrkmenistan.

Helgi Áss Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson unnu sínar skákir á meðan Jóhann Hjartarson tapaði á fyrsta borði gegn mjög sterkum andstæðingi. Guðmundur Kjartansson tryggði svo sigur í viðureigninni með jafntefli á fjórða borði og 2.5-1.5 sigur staðreynd.

Í kvennaflokki vorum við aftur án Lenku og þrátt fyrir góða baráttu varð 1-3 tap niðurstaðan. Guðlaug Þorsteinsdóttir var sú eina úr íslenska liðinu sem vann sína skák og heldur áfram að eiga stórgott mót.

Kvennaliðið ætti að fá stigalægri andstæðing á morgun en íslensku strákarnir í opna flokknum fá líklega erfiðan andstæðing á morgun.

 

- Auglýsing -