Þriðja keppnistímabil Heimsdeildarinnar í netskák hófst formlega í dag, 1. okótber. Gefin hefur verið út pörun í fyrstu umferð og mætir Team Iceland sterku liði Argentínumanna á sunnudaginn kl. 20.
Team Iceland mætti Argentínu á undirbúningstímabilinu og var niðurstaðan þá stórsigur í leifturskákinni en sorglegt tap í hraðskákinni. Búast má við því að Argentína mæti með talsvert sterkara lið að þessu sinni, enda um að ræða formlega keppni, en ekki vináttukeppni líkt og í haust. Allir eru því hvattir til að mæta til leiks og taka þátt í því að kveða niður Argentínudrauginn!
Hvenær?
Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 20:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú rimma kl. 20:20. Ekki er skilyrði að tefla í báðum keppnum, keppendur geta valið að tefla aðeins hraðskákina, eða öfugt.
Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
Dagskráin
- Sunnudagur 07. október kl. 20:00 – Bullet keppni 1/1 (Ísland – Argentína) ( https://www.chess.com/live#tm=1717 )
- Sunnudagur 07. október kl. 20:20 – Hraðskák 5/2 (Ísland – Argentína) ( https://www.chess.com/live#tm=1718 )
Umferðatafla og pörun keppnistímabilsins
Endanleg pörun liggur nú fyrir. Fyrirkomulagið er þannig að pörun er gefin út fyrir hverja viku fyrir sig (sjá að neðan). Hver viðureign skal svo fara fram innan þess tímaramma sem þarna kemur fram. 1. umferð skal þannig tefld í vikunni 1.-7. október en nákvæm tímasetning er samkomulagsatriði.
| v/hefst | v/lýkur | Vika nr. | Umferð | Teflum við | Fer fram |
| 01. okt | 07. okt | 1 | 1 | Argentina Live Chess | 07. okt kl. 20 |
| 08. okt | 14. okt | 2 | 2 | Srbija Tim | |
| 15. okt | 21. okt | 3 | Frí | ||
| 22. okt | 28. okt | 4 | 3 | Team Ukraine | |
| 29. okt | 04. nóv | 5 | 4 | Team Russia | |
| 05. nóv | 11. nóv | 6 | Frí | ||
| 12. nóv | 18. nóv | 7 | 5 | Ecuador Live Chess | |
| 19. nóv | 25. nóv | 8 | 6 | Team Slovakia | |
| 26. nóv | 02. des | 9 | Frí | ||
| 03. des | 09. des | 10 | 7 | Team Peru | |
| 10. des | 16. des | 11 | Adjustments | ||
| 17. des | 23. des | 12 | 8 | Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu | |
| 24. des | 30. des | 13 | Frí | ||
| 31. des | 06. Jan | 14 | 9 | Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu | |
| 07. Jan | 13. Jan | 15 | Frí | ||
| 14. Jan | 20. Jan | 16 | 10 | Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu |
Deildin: Hraðskák og Leifturskák
Hraðskákdeildin og leifturskákdeildin eru aðskildar keppnir. Hraðskákin er tefld í þremur deildum (við teflum í 1. deild) en leifturskákin er tefld í einni deild þar sem lið úr öllum deildum hraðskákkeppninnar taka þátt. Oftast mætum við sama liðinu í hraðskák og leifturskák en á því eru öfráar undantekningar þegar við teflum leifturskák við lið úr neðri deildunum.
Skoða má stöðuna í 1. deild LCWL hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/16JRaTtcQFuGwgaP8uGll_19RNxGGhARsakE62oWmtuk/edit#gid=950728376
Skoða má stöðuna í leifturskákinni hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/148fFcVprfkq43vkVPh8cEL9y_uIR5C_O0IvdDgCXKD4/edit#gid=1216857011
| 1. deild (lágmark 20 borð) |
| Srbija Tim |
| Team Russia |
| Team Ukraine |
| Team Peru |
| Argentina Live Chess |
| Team Slovakia |
| Ecuador Live Chess |
| Iceland |















