Magnús mætti í síðbuxum í gær. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Taflfélag Reykjavíkur vann góðan, 4½-1½, sigur á sveitinni Gambit Bonnevoie frá Lúxemborg í fjórðu umferð EM taflfélaga sem fram fór í gær. Sigur vannst á þremur efstu borðunum en 1½ vinningur kom í hús á hinum þremur neðri.

Guðmundur Kjartanson hefur staðið sig vel á mótinu. Mynd: Heimasíða mótsins.

Víkingaklúbburinn tapaði 2½-3½ fyrir finnsku sveitinni SK Comeon.  Illa gekk á efstu fjórðu borðunum og aðeins ½ vinningur kom þar í hús. Sigrar unnust á 5. og 6. borði.

Davíð Kjartansson hefur ekki náð sér á strik á mótinu. Mynd: Heimasíða mótsins.

Taflfélag Reykjavíkur er í 14. sæti með 6 stig en Víkingaklúbburinn er í 50. sæti með 2 stig. Fimmta umferð fer fram í dag og þá tefla TR-ingar við norsku sveitina Nordstrand Sjakkklubb. Okkar menn eru stigahærri á borðum 3.-6. en stigalægri á tveim efstu borðunum. Góð úrslit í dag geta þýtt viðureign við eina af sterkustu sveitunum í næstsíðustu umferðinni á morgun.

Víkingasveitin mætir sveit Hvítu riddarana frá Wales. Um tengsl þeirra við Mosfellsbæ skal ósagt látið. Gott tækifæri fyrir Víkingana að láta ljós sitt skína enda stigahærri á öllum borðum.

Magnús mætti í síðbuxum

Heimsmeistarinn lét loks sjá sig í hefðbundnum klæðnaði í gær en stuttbuxna klæðnaður hans í fyrstu umferðunum hafði vakið athygli og er andstöðu við reglur ECU um klæðnað á slíkum mótum.

Um mótið

Evrópukeppni taflfélaga fer fram í Porto Carras í Grikklandi. Tvö íslensk taflfélög taka þátt. Annars vegar eru það Íslandsmeistarar Víkingaklúbbbins og hins vegar Taflfélag Reykjavíkur. TR sendir sterkt lið til leiks. Lið þeirra hefur meðalstigin 2419 skákstig og er hið 19. stigahæsta af 61 sveit. Lið Víkingaklúbbins er töluvert lakara. Meðalstigin eru 2178 skákstig og er liðið nr. 47 í styrkleikaröðinni.

Skákhlaðvarpið

Samkvæmt heimildum ritstjóra Skák.is eru liðsmenn of uppteknir í fótsnyrtingum og lúxusnuddi á hótelinu þar sem mótið fer fram til að gera skákhlaðvarp.

- Auglýsing -