
Skákfélagið Huginn hreppti forystuna á Íslandsmóti skákfélaga með 5-3 sigri á Skákdeild Fjölnis í fjórðu umferð Íslandsmóts skákfélaga í gærkvöldi. Sigurinn vannst á 4.-6. borði þar sem Huginsmenn unnu sínar skákir.
Hvað Björn Þorfinnsson er að gera á meðan fylgist með félögum sínum í Víkingaklúbbnum er ekki ljóst. Mynd: Halla
Aðeins munar hálfum vinningi á sveitunum tveim. Íslandsmeistarar Víkingaklúbbins eru skammt undan eftir 5-3 sigur á b-sveit Hugins. Þar vakti athygli sigur Atla Freys Kristjánssonar (2177) á Jóni L. Árnasyni (2449).
Önnur úrslit urðu þau að a-sveit Taflfélag Reykjavíkur vann Taflfélag Garðabæjar 5-3, Breiðablik, Bolungarvík og Reyjanes lagði b-sveit TR að velli með sama mun. Skákfélag Akureyar vann 7½-½ stórsigur á Skákdeild KR.
Öll úrslit umferðarinnar má finna á Chess-Results.

2. deild
Skákdeild Hauka og b-sveit Víkingaklúbbins eru efst með 11 vinninga. B-sveit Skákfélags Akureyrar og Hrókar alls fagnaðar eru í 3.-4. sæti.
Deildin er afar jöfn Aðeins munar vinningi á sveitinni í verðlaunsæti og fallsæti.
3. deild
Skákfélag Sauðárkróks og b-sveit Taflfélags Garðabæjar hafa fullt hús stiga. Taflfélag Vestmannaeyja er í þriðja sæti.
Staðan á Chess-Results.
4. deild
B-sveit Hróka alls fagnaða og Ungmennasamband Borgarfjarðar hafa fullt hús stiga. B-sveit Taflfélags Vestmannaeyja er í þriðja sæti.
Staðan á Chess-Results.















