Skólameistaramót Reykjavíkur fer fram í Laugalækjarskóla.

Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram þriðjudaginn 30. apríl í Laugalækjarskóla og hefst klukkan 16:15.

Tefldar verða 6-7 umferðir með 8 mínútna umhugsunartíma og tveimur viðbótarsekúndum eftir hvern leik.

Teflt er í yngri flokki 1.-7. bekkur og eldri flokki 8.-10. bekkur. Efstu tveir í yngri flokki fá sæti á landsmóti og efstu þrír í eldri flokki.

Hver skóli má senda til leiks sína skólameistara og þá sem hafa teflt fyrir skólann í vetur.

Skráningarfrestur rennur út kl. 22 mánudagskvöldið 29. apríl.

- Auglýsing -