Clara Heiberg () – Batel Goitom Haile (1582) 0-1
Nancee Cheryl (1267) – Freyja Birkisdóttir (1430) 0-1
Idunn Helgadóttir(1137) – Mallie Stage-Steffensen () 1-0
Karen Ólöf Gísladóttir () – Soffía Arndís Berndsen (1031) 0-1
Anna Katarina Thoroddsen (1027) – Sarah Sima Derlich () 1-0
Mille Østoft Gaardland () – Ásthildur Helgadóttir (1077) 0-1
Stelpurnar okkar stóðu sig með prýði í lokaumferðinni í dag. Það er erfitt að biðja um meira en sex vinninga af sex mögulegum, en ég held að þær hefðu fengið sjö vinninga af sjö ef ekki hefði verið fyrir eina innbyrðis viðureign. Frábær endir á skemmtilegu móti.
Batel vann góðan sigur á hinni dönsku Clöru sem hefur verið að taka punkta af stigahæstu stelpunum. Sú danska reyndi að fórna manni fyrir þrjú peð en Batel hafnaði því með því að fórna manni til baka og staðan hélst í jafnvægi. Í framhaldinu reyndist Batel einfaldlega sterkari og kláraði hún skákina með góðum skiptamunsvinningi. Batel endaði því með þrjá og hálfan vinning og í 5.-6. sæti.
Freyja tefldi við hina ungu Nancee frá Danmörku. Skákin var lengi vel jafnteflisleg þar til Freyja snéri á hana í peðsendatafli og vann góðan sigur. Freyja endaði líka með þrjá og hálfan vinning í 5.-6. sæti.
Iðunn átti ekki í miklum erfiðleikum með Mallie frá Danmörku. Iðunn vann fljótlega mann með góðri fléttu og vann svo skákina auðveldlega í framhaldinu. Iðunn endaði með þrjá vinninga í 7.-11. sæti.
Soffía vann Karen í innbyrðis viðureigninni í dag í ágætlega tefldri skák. Karen nýtti tímann mun betur í þessari skák en í fyrri skákum og hefur greinilega lært mikið af sínu fyrsta móti. Soffía endaði með tvo og hálfan vinning í 12.-14. sæti og Karen endaði með 1 vinning í 20.-23. sæti.
Anna tefldi við hina dönsku Söruh og vann í góðri skák. Anna vann fljótlega peð og svo mann í framhaldinu. Anna kláraði svo skákina á vel útfærðan hátt þar sem drottning og riddari hennar unnu afar vel saman gegn drottningu andstæðingsins. Vel tefld skák hjá Önnu. Anna endaði með tvo og hálfan vinning í 12.-14. sæti.
Ásthildur vann góðan sigur á hinni dönsku Mille. Ásthildur vann hrók eftir byrjunina á vel útfærðan hátt og kláraði svo skákina í framhaldinu. Ásthildur endaði með 2 vinninga í 15.-19. sæti.
Í heildina litið var árangurinn í mótinu ágætur en ég hefði viljað að við værum í meiri séns að vinna mótið. Sigurvegarinn í mótinu varð hin finnska Sara-Olivia sem fékk fjóra og hálfan vinning með því að vinna allar sínar skákir nema á móti Batel. Mín tilfinning er að stelpurnar okkar eigi mikið inni og með góðri ástundun næsta árið ættu þær að verða ofarlega á næsta móti.
Því miður vorum við aðeins með í einum flokki af þremur í ár, bæði vegna þess að við eigum tiltölulega fáar stelpur í eldri aldursflokkunum og vegna þess að þær stelpur sem við þó eigum voru allar í prófum á þessum tíma. Ég vil leggja til við Skáksambandið að reyna að fá mótið fært framar á árið fram í lok febrúar eða byrjun mars til að eldri stelpurnar eigi auðveldara með að taka þátt.
Sigurvegarinn í elsta flokknum varð Ellen Fredericia Nilssen frá Danmörku sem meðal annars tefldi á Reykjavíkurskákmótinu í ár. Hún vann glæsilegan sigur með 5 vinninga af 5 mögulegum.
Sigurvegarinn í b-flokknum varð hin finnska Sarabella Nordamo sem fékk 4 af 5. Það var hins vegar mjög leiðinlegt að sjá að hin sænska Margarita Zaritovskaja varð fyrir því óláni að felldar voru niður lestarferðir á föstudag þannig að hún náði ekki í fyrstu umferðina í tæka tíð og tapaði því fyrstu skákinni. Það versta við það var að það skrifast að hluta til á mótshaldarana því að í b-flokknum stóð á stöku og því hefði verið hægt að para hana í yfirsetu í fyrstu umferð nema vegna þess að mótshaldarar pöruðu löngu fyrir mót í stað þess að para eftir tæknifundinn klukkutíma fyrir mót eins og vaninn er. Reglur FIDE leyfa nefnilega ekki að útgefinni pörun sé breytt.
Að lokum vil ég þakka stelpunum fyrir frábæra helgi því það eru sannarlega forréttindi að vinna með svona skemmtilegum og jákvæðum hóp.















