Batel Goitom Haile (1582) – Sara-Olivia Sippola (1544) ½-½
Linnea Johansson-Ohman (1563) – Idunn Helgadóttir(1137) 1-0
Freyja Birkisdóttir (1430) – Leia Andries () 1-0
Ásthildur Helgadóttir (1077) – Clara Heiberg () 0-1
Soffía Arndís Berndsen (1031) – Anna Katarina Thoroddsen (1027) ½-½
Elli-Sofie Munkegaard () – Karen Ólöf Gísladóttir () 0-1
Þrír og háflfur vinningur af sex mögulegum í morgunumferðinni var alveg viðundandi árangur þó alltaf vilji maður meira. Batel tefldi við einn af forystusauðunum þremur sem voru með fullt hús og þurfti að vinna til að eiga séns á að vinna mótið. Sú finnska sem Batel telfdi við er hins vegar mjög öflug og mig minnir að þetta sé annað jafnteflið þeirra á milli í tveimur skákum. Skákin var frekar róleg með mikilli undiröldu sem endaði með því að sú finnska komst peði yfir í hróksendatafl sem er tiltölulega auðvelt jafntefli og þar sem hún þekkir styrk Batelar vel þá bauð hún bara strax jafntefli til að spara orkuna.
Iðunn tefldi við hina sænsku Linneu sem er mjög sterk og eftir að Iðunn hafði tapað peðum þá varð þetta mjög erfitt og loks tapaðist drottningin og þar með skákin. Iðunn hefur verið að tefla vel hér og vantar aðeins herslumuninn til að taka punkta af sterkustu stelpunum.
Freyja tefldi við Leiu frá Danmörku. Freyja tefldi mjög örugg og fékk smá saman betri stöðu sem hún vann vel úr og vann að lokum skiptamun. Hún fórnaði svo skiptamuninum til baka til að koma í veg fyrir allt sprikl andstæðingsins og fékk þá auðunnið peðsendatafl. Góður sigur hjá Freyju í dag.
Ásthildur tefldi við Clöru frá Danmörku sem gerði jafntefli við Freyju í gær. Ásthildur kom sér upp ágætis stöðu og vann skiptamun en var of lengi að koma riddaranum sínum til baka sem féll þá vegna máthótana. Eftir það varð staðan erfið og sú danska vann vel úr henni og vann góðan sigur. Ásthildur hefur verið að tefla vel og er með færri vinninga en hún ætti að vera með.
Þær vinnkonur Soffía og Anna tefldu saman í dag. Eftir byrjunina kom upp staða þar sem hvorug vildi taka sénsinn og sættust þær á skiptan hlut.
Þarna kom það loksins! Eins og í síðustu skákum þá fékk Karen fljótlega betri stöðu en í þetta skiptið vafðist úrvinnslan ekkert fyrir henni og hún kláraði skákina örugglega. Fyrsti vinningur hennar á Norðurlandamóti kominn í hús. Það var gott að sjá að Karen nýtti tímann sinn betur í dag en í fyrri skákum enda skilaði það sér í góðum sigri.
Staðan fyrir lokaumferðina er eftirfarandi:
C- flokkur:
Linna Larre frá Noregi er efst með 4 vinninga af fjórum og Sara-Olivia Sippola frá Finnlandi er önnur með 3,5. Þær tefla saman í síðustu umferð hreina úrslitaskák. Hjá okkar stelpum er staðan þannig að Batel og Freyja eru í 7.-9. sæti með 2,5 vinninga, Iðunn er í 10.-16. sæti með 2 vinninga, Soffía og Anna eru í 17.-18. sæti með 1,5 vinninga og Ásthildur og Karen eru í 19.-22. sæti með 1 vinning.
Í lokaumferðinni, sem er nýhafin, eru eftirfarandi viðureignir hjá okkar stelpum:
Clara Heiberg () – Batel Goitom Haile (1582)
Nancee Cheryl (1267) – Freyja Birkisdóttir (1430)
Idunn Helgadóttir(1137) – Mallie Stage-Steffensen ()
Karen Ólöf Gísladóttir () – Soffía Arndís Berndsen (1031)
Anna Katarina Thoroddsen (1027) – Sarah Sima Derlich ()
Mille Østoft Gaardland () – Ásthildur Helgadóttir (1077)
Heimasíða mótsins
Skákirnar í beinni
















