Linnea Larre (1563) – Batel Goitom Haile (1582) 1-0
Amelia Nordquelle (1568) – Soffía Arndís Berndsen (1031) 1-0
Clara Heiberg () – Freyja Birkisdóttir (1430) ½-½
Idunn Helgadóttir(1137) – Zofia Izabella Marzec () 1-0
Leia Andries () – Ásthildur Helgadóttir (1077) 1-0
Anna Katarina Thoroddsen (1027) – Mathilde Bartels Fagan () 1-0
Karen Ólöf Gísladóttir () – Mille Østoft Gaardland () 0-1
Tveir og hálfur vinningur af sjö mögulegum varundir væntingum fyrir umferðina. Öllu eðlilegra hefði verið að fá u.þ.b. fjóra og hálfan vinning en tvær unnar skákir sem töpuðust í lokin urðu þess valdandi að skorið var ekki hærra í dag.
Batel tefldi við Linneu frá Noregi og missti af bestu leiðinni í miðtaflinu en tapaði þess í stað peði. Andstæðingurinn tefldi framhaldið afar vel og vann að lokum þrátt fyrir harða baráttu af hálfu Batel.
Soffía tefldi við Amaliu frá Noregi. Sú norska er rúmlega 500 stigum hærri en Soffía á stigalista Fide og eftir að Soffia í viðleitni sinni til að halda stöðunni opinni leyfði andstæðingnum að fá sterkan riddara á c5 varð staðan of erfið til að verja. Skiptamunur tapaðist og skákin skömmu síðar.
Freyja tefldi við Klöru frá Danmörku afar spennandi skák þar sem þær stöllur skiptust á að bjóða jafntefli. Freyja fékk tapað peðsendatafl en snéri laglega á andstæðinginn og jafntefli varð niðurstaðan í baráttuskák.
Iðunn tefldi við Zofiu frá Danmörku. Sú danska gaf Iðunni mann snemma tafls og skömmu síðar hafði Iðunn unnið af henni drotninguna. Áreynslulaus og öruggur sigur hjá Iðunni í dag.
Ásthildur tefldi við Leiu frá Danmörku. Ásthildur tefldi vel framan af og vann að lokum mann af andstæðingnum og þjarmaði að henni þannig að stutt var í mátið. Ásthildur flýtti sér því miður um of og í æsingnum við að máta andstæðinginn snerti hún man sem kostaði að hún tapaði manninum til baka í stað þess að vinna hrók og sat uppi með erfiða stöðu sem tapaðist. Afar slæmur endir á annars ágætlega tefldri skák.
Anna tefldi við Matthildi frá Danmörku og vann mann mjög fljótlega eftir furðulega taflmennsku andstæðingsins. Reyndar hefði hún getað unnið drottningu en stundum festist fókusinn á ákveðnu svæði skákborðsins í stað þess að skoða allt vel og vandlega. Þetta kom þó ekki að sök því Anna vann drottninguna skömmu síðar og kláraði skákina með góðu máti. Ágætis skák hjá Önnu.
Karen tefldi við Mille frá Danmörku og vann mann snemma tafls. Henni voru þó mislagðar hendur í framhaldinu og lenti í mátneti sem ekki var unnt að komast úr. Karen er að læra mikið af þessu fyrsta móti sínu og er klárlega engu lakari en margar stelpurnar í flokknum. Hún þarf þó að vara sig á því að láta stressið ekki bera sig ofurliði við að innbyrða vinningana.
Í fjórðu og næst síðustu umferð sem hefst klukkan 8 á sunnudagsmorgun að íslenskum tíma eru eftirfarandi viðureignir hjá stelpunum okkar:
Batel Goitom Haile (1582) – Sara-Olivia Sippola (1544)
Linnea Johansson-Ohman (1563) – Idunn Helgadóttir(1137)
Freyja Birkisdóttir (1430) – Leia Andries ()
Ásthildur Helgadóttir (1077) – Clara Heiberg ()
Soffía Arndís Berndsen (1031) – Anna Katarina Thoroddsen (1027)
Elli-Sofie Munkegaard () – Karen Ólöf Gísladóttir ()
Heimasíða mótsins
Skákirnar í beinni

















