Héðinn Briem og Gauti Páll undirbjuggu sig vel fyrir mótið og flytja inn um 80 skákstig í íslenskt skákhagkerfi. Mynd: Elvar Örn.

Íslensku keppendum þremur gekk vel á HSG-mótinu sem fram fór í Hollandi um helgina. Allir hækkuðu þeir vel á stigum.

Gauti Páll Jónsson (2033) tefldi í a-flokki. Hann hlaut 4 vinninga í sex skákum og það þrátt fyrir að hafa teflt við stigahærri menn í fimm skákum af sex. Hann hækkar um ríflega 40 skákstig.

Loek Van Wely sigraði á mótinu.

Héðinn Briem (1628) og Elvar Örn Hjaltason (1691) tefldu í b-flokki. Héðinn hlaut 4 vinning en Elvar hlaut 3,5 vinning. Héðinn hækkar um 40 stig en Elvar um ríflega 10 stig.

 

- Auglýsing -