Helgi Áss að tafli í Sarpsborg. Hér vann hann norskt undrabarn sem hefur verið líkt viið Magnús Carlsen. Sá norski vann Lenku í fjórðu umferð.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2433) hefur byrjað prýðlega á Norðurlandamótinu í skák sem fram fer í Sarpsborg í Noregi. Eftir 4 umferðir hefur Helgi hlotið 3½ vinning. Hann mætir á morgun sænska alþjóðlega Jonathan Westerberg (2545). Þá eru tefldar tvær umferðir. Sú fyrri hefst kl. 8 en sú seinni kl. 15.

Lenka Ptácníková (2145) tekur einnig þátt. Hún teflir einnig í opnum flokki en efsta konan þar verður Norðurlandameistari kvenna. Aðeins fimm konur taka þátt.

Lenka að tafli á Norðurlandamótinu. Mynd: GB

Úrslit Helga:

Úrslit Lenku

Samhliða mótinu fer fram Norðurlanda öldunga. Þar tefla 24 skákmenn. Meðal keppenda þar er Baldvin Þorláksson (1523) sem er Íslendingur þrátt fyrir að tefla undir norsku flaggi. Hefur verið búsettur þarlendis í mörg ár. Enginn Íslendingur tekur þátt í öldungamótinu fyrir utan Baldvin!

Baldvin Þorláksson til hægri. Mynd: GB

Í gær fór fram aðalfundur Skáksamands Norðurlanda. Undirritaður lét af störfum sem forseti Skáksambands Norðurlanda. Við embættinu tók Poul Jacobsen, forseti danska skáksambandsins, Nánar verður farið yfir niðurstöðu þess fundar á næstu dögum.

- Auglýsing -