Taflfélag Reykjavíkur stóð fyrir þriðjudagsmótum á þriðjudögum í vor. Mótin hafa fengið ágætar viðtökur hjá skákáhugamönnum og hefur þátttaka yfirleitt verið í kringum 10 manns. Gaman væri að sjá fleiri skákmenn yfir 2000 stigum tefla með.

Það verða haldin tvö sumarmót með sama sniði síðustu þriðjudagana í júní og júlí. Næstu mót verða því:

  • Þriðjudaginn 25. júní kl. 19:30
  • Þriðjudaginn 30. júlí kl. 19:30

Mótin halda áfram vikulega frá og með þriðjudeginum 27. ágúst. Stjórn TR vonar að mótin festist í sessi og auki veg atskákar í íslensku skáksamfélagi.

- Auglýsing -