Helgi Áss á NM. Mynd: Heimasíða mótsins.

Í gær voru tefldar tvær umferðir á Norðurlandamótinu í Sarpsborg. Helgi Áss Grétarsson (2433) hlaut í þeim hálfan vinning. Hann gerði jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Jonathan Westerberg (2434) en tapaði fyrir norska stórmeistaranum Frode Urkedal (2525).  Helgi hefur 4 vinninga og er í 10.-15. sæti. Urkedal er efstur með 5,5 vinninga. Sigurvegarinn fær keppnsirétt á Heimsbikarmótinu í skák í haust.

Lenka að tafli á NM. Mynd: Heimasíða mótsins.

Lenka Ptácníková (2145) hefur 3 vinninga en hún fékk 1,5 vinning í gær. Hún er í 1.-2. sæti af konunum en efsta konan fær titilinn Norðurlandameistari kvenna.

Baldvin Þorláksson (2523) hefur 3,5 vinninga í öldungaflokki en þar hafa verið tefldar 6 umferðir.

Umferð dagsins hefst kl. 13.

- Auglýsing -