Sjötta og næstsíðasta umferð haustmóts Skákfélags Akureyrar – sem er meistaramót félagsins – var tefld í gærkveldi, fimmtudag. Úrslit urðu sem hér segir:
Andri Freyr-Eymundur 1-0
Elsa-Stefán 1/2
Heiðar-Arnar Smári 0-1
Robert-Arna Dögg 1-0
Emil-Árni Jóhann 0-1
Hilmir-Markús 1-0
Gunnar Logi-Sigþór 1-0
Þeir Sigurður, Hjörleifur og Jökull Máni tóku allir yfirsetu í þessari umferð og fengu fyrir hálfan vinning.
Alexía sat hjá (án þess að sækja um yfirsetu sjálf) og hlýtur því heilan vinning fyrir.
Andri Freyr er efstur á mótinu sem fyrr og hefur nú þegar tryggt sér sigurinn og meistaratitil Skákfélagsins. Hann hefur sex vinninga, en þau Elsa og Stefán koma næst með fjóra og hálfan. Róbert, Arnar Smári og Sigurður Eiríksson koma svo næstir með fjóra vinninga. Öll úrslit og stöðuna í mótinu má finna á Chess-results.

















