Íslandsmót ungmenna fer fram laugardaginn 16. nóvember í Stúkunni við Kópavogsvöll. Mótið hefst kl. 10 Teflt er í fimm aldursflokkum. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.
Auk þess eru góðir happdrættisvinningar í boði í öllum flokkum. BL Bluetooth hátalarar og heyrnartól frá Heimilistækjum
Skákungmenni eru hvött til að skrá sig eigi síðar en kl. 20 í kvöld til að mótshaldarar geti sem best áttað sig á umfanginu.
Flokkaskipting
Kl 10:00 – 14:00 Íslandsmót ungmenna U16, U14 og U12
Kl 14:00 – 17:00 Íslandsmót ungmenna U10 og U8
Afar góð verðlaun verða í boði. Sigurvegari hvers flokks fær frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2020 og árangur gildir til vals á NM í skólaskák.
8 ára og yngri (f. 2011 og síðar)
Teflt verður sér flokkum fyrir drengi og stúlkur. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
9-10 ára (f. 2009 og 2010)
Teflt verður sér flokkum fyrir drengi og stúlkur. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
11–12 ára (f. 2007 og 2008)
Stefnt að því að tefla í sérflokkum fyrir drengi og stúlkur. Verði þátttaka ekki næg kunna flokkarnir að verða sameinaðir. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum (þá eldri).
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.
13–14 ára (f. 2005 og 2006)
Teflt verður í sameinuðum flokki stúlkna og stráka. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
15–16 ára (f. 2003 og 2004)
Teflt verður í sameinuðum flokki stúlkna og stráka. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
Skráning og greiðsla þátttökugjalda
Skráning fyrir alla flokka fer fram á skák.is (guli kassinn til hægri) eða:
Tekið verður við þátttökugjöldum og staðfestingu á mætingu 40mín fyrir mót. Þeir keppendur sem mæta seinna en 10mín fyrir mót geta misst sæti sitt í því.
Þátttökugjald er krónur 1.500 og greiðist með reiðufé við staðfestingu á mætingu. Systkini borga aldrei meira en 2.500 kr. samtals. Hægt er jafnframt að greiða í gegnum netbanka fyrir mót inn á reikning 0322-26-004664, kt. 5611121770. Vinsamlegast látið nafn keppenda koma fram í skýringu og sendið kvittun á halldorgretar@isl.is .
Verðlaun
Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig.
Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.
- Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.
- Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2020.
- Árangur í Íslandsmótinu í U14,U12,U10 og U8 er ásamt skákstigum hafður til hliðsjónar við val á keppendum á NM í skólaskák í 14.-16. febrúar í Fredericia, Danmörku.
- Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.
*Nánar um oddastig
Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra
Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi sigra












