Áskell eftir að hafa orðið í 2. sæti á EM öldunga í fyrra. Mynd: GB

Áskell Örn Kárason (2271) hefur 6 vinninga að loknum 9 umferðum á HM öldunga (+65) sem er í gangi í Rúmeníu. Hann er í 12.-23. sæti. Áskell vann Belgann Marcel Van Herck (2116). Sævar Bjarnason (2085) gerði sitt fjórða jafntefli í röð í gær og hefur hlotið 4½ vinning.

Tíunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Áskell mætir þar hvít-rússneska alþjóðlega meistaranum Evgeny Mochalvo (2374). Skákin verður í beinni útsendingu.

Áskell segir svo á Facebook um skák gærdagsin.

Alls taka 192 skákmenn frá 43 löndum þátt í flokki Áskels og Sævars. Þar á meðal eru 9 stórmeistarar og 34 alþjóðlegir meistarar.

- Auglýsing -