Desembermót Miðbæjarskákar 2019 fór fram sunnudaginn 15. desember í Bíó Paradís. Mótið fékk hið frumlega nafn “Skák í Paradís” sem átti vel við! Salurinn var ansi skemmtilegur og tók sig vel út sem vettvangur skákmóts. 24 skákmenn mættu til leiks og tefldar voru níu hraðskákir með tímamörkunum 3+2. Átta vinninga hlutu skákmeistararnir Dagur Ragnarsson og Davíð Kjartansson, en Dagur var hærri á oddastigum. Dagur tapaði einni skák, gegn Helga Áss, og Davíð tapaði einnig bara einni skák, gegn Degi. Þriðji var stórmeistarinn síkáti Helgi Áss Grétarsson með sjö vinninga.

Fjórir skákmenn hækkuðu um meira en 40 stig! Dagur hækkar um 42 stig og Davíð um heil 52 stig. Miðbæjarskákmennirnir Arnar Ingi Njarðarson og Þórður Grímsson hækka einnig hraustlega á stigum, Þórður um 43 stig og Arnar um 40. Í mótshléi gátu menn gætt sér á funheitu ostapoppi enda stutt í nammisölu kvikmyndahússins! Efstu þrír skákmenn mótsins fengu peningaverðlaun, en einnig voru veitt glæsileg aukaverðlaun í stigaflokkum í formi áskrifta að chess.com. Þórður Grímsson varð efstur manna undir 1600 stigum. Elvar Örn Hjaltason varð efstur skákmanna undir 1800 stigum og efstur skákmanna undir 2000 stigum varð Kristján Örn Elíasson.

Arnljótur Sigurðsson var mótstjóri, þó undirritaður myndi frekar kalla hann veislustjóra. Skákstjórn var í öruggum höndum Róberts Lagerman, sem tók á vafamálum með sinni stóísku ró. Fyrir lokaumferðina fékk Róbert orðið og tilkynnti að Skáksambandið myndi styrkja Menningarfélagið Miðbæjarskák með veglegri gjöf; 20 skáksettum! Má SÍ eiga kæra þökk fyrir það!
Næsta mót á vegum Miðbæjarskákar verður haldið föstudaginn 24. janúar á nýju ári. Það verður hvorki meira né minna en Íslandsmót í “Heila og hönd”. Jón Viktor Gunnarsson getur því reynt að næla sér í enn einn Íslandsmeistaratitilinn á árangursríku skákári! Mótið verður haldið í samstarfi við TR, en teflt verður í skáksalnum Faxafeni 12. Hægt verður að skreppa á Billiardbarinn í skákhléi, en mótið verður í anda gömlu Skemmtikvöldanna sem haldin voru hér fyrir nokkrum árum undir handleiðslu Björns Jónssonar.
















